Njáls saga 73 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Nj ch. 73)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Þessi tíðindi spyrjast víða og var Þorgeir mörgum mönnum
harmdauði. Þeir Gissur hvíti og Geir goði riðu til og lýstu
vígunum og kvöddu búa til þings. Riðu þá vestur aftur.
Þeir Njáll og Gunnar fundust og töluðu um bardagann.
Þá mælti Njáll til Gunnars: "Ver þú nú var um þig. Nú hefir
þú vegið tvisvar í hinn sama knérunn. Hygg nú svo fyrir hag
þínum að þar liggur við líf þitt ef þú heldur eigi þá sætt
sem ger er."
"Hvergi ætla eg mér af að bregða," segir Gunnar, "en þó mun
eg þurfa liðsinni yðvart á þingi."
Njáll svaraði: "Halda mun eg við þig mínum trúnaði til
dauðadags."
Ríður Gunnar þá heim.
Líður nú til þings og fjölmenna hvorirtveggju mjög. Er um
þetta allfjölrætt á þingi hversu þessi mál mundu lúkast.
Þeir Gissur hvíti og Geir goði töluðu með sér hvor þeirra
lýsa skyldi vígsökinni Þorgeirs. En þar kom að Gissur tók
undir sig málið og lýsti sök að Lögbergi og kvað svo að orði
að "eg lýsi lögmætu frumhlaupi á hönd Gunnari Hámundarsyni um
það er hann hljóp lögmætu frumhlaupi til Þorgeirs Otkelssonar
og særði hann holundarsári því er að ben gerðist en Þorgeir fékk
bana af. Tel eg hann eiga að verða um sök þá sekan skógarmann,
óælan, óferjanda, óráðanda öllum bjargráðum. Tel eg sekt fé hans
allt, hálft mér en hálft fjórðungsmönnum þeim er sektarfé eiga
að taka eftir hann að lögum. Lýsi eg til fjórðungsdóms þess er
sökin á í að koma að lögum, lýsi eg löglýsing, lýsi eg í heyranda
hljóði að Lögbergi, lýsi eg nú til sóknar í sumar og
til sektar fullrar á hönd Gunnari Hámundarsyni."
Í annað sinn nefndi Gissur sér votta og lýsti sök á hönd
Gunnari Hámundarsyni um það er hann særði Þorgeir Otkelsson
holundarsári því er að ben gerðist en Þorgeir fékk bana af á
þeim vettvangi er Gunnar hljóp til Þorgeirs lögmætu
frumhlaupi áður. Síðan lýsti hann þessi lýsing sem hinni
fyrri. Þá spurði hann að þingfesti og að heimilisfangi.
Eftir það gengu menn frá Lögbergi og mæltu allir að honum
mæltist vel. Gunnar var vel stilltur og lagði fátt til.
Líður nú þingið þar til er dómar fara út. Gunnar stóð norðan
að Rangæingadómi og hans menn en Gissur hinn hvíti stóð
sunnan að og hans menn og nefndi sér votta og bauð Gunnari að
hlýða til eiðspjalls síns og til framsögu sakar sinnar og til
sóknargagna þeirra allra sem hann hugði fram að færa. Eftir
það vann hann eið. Þá sagði hann fram sök sína svo skapaða í
dóm sem hann lýsti. Þá lét hann bera lýsingarvætti. Þá bauð
hann búum í setu og til ruðningar um kviðinn.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.