Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

Nj ch. 34

Njáls saga 34 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (Nj ch. 34)

Anonymous íslendingasögurNjáls saga
333435

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):


Þráinn hét maður. Hann var Sigfússon Sighvatssonar hins
rauða. Hann bjó að Grjótá í Fljótshlíð. Hann var frændi
Gunnars og virðingamaður mikill. Hann átti Þórhildi
skáldkonu. Hún var orðgífur mikið og fór með flimtan. Þráinn
unni henni lítið. Honum var boðið til boðsins til Hlíðarenda
og skyldi kona hans ganga um beina og Begþóra
Skarphéðinsdóttir kona Njáls. Ketill hét annar Sigfússon. Hann
bjó í Mörk fyrir austan Markarfljót. Hann átti Þorgerði
Njálsdóttur. Þorkell hét hinn þriðji Sigfússon, fjórði
Mörður, fimmti Lambi, sétti Sigmundur, Sjöundi Sigurður.
Þessir voru allir frændur Gunnars og voru kappar miklir. Þeim
hafði Gunnar boðið öllum til boðsins. Gunnar hafði og boðið
Valgarði hinum grá og Úlfi aurgoða og sonum þeirra, Runólfi
og Merði.



Þeir Höskuldur og Hrútur komu til boðsins fjölmennir. Þar voru
synir Höskulds, Þorleikur og Ólafur. Þar var brúðurin í för
með þeim og Þorgerður dóttir hennar og var hún kvenna
fríðust. Hún var þá fjórtán vetra gömul. Margt var með henni
annarra kvenna. Þar var og Þórhalla dóttir Ásgríms
Elliða-Grímssonar og dætur Njáls tvær, Þorgerður og Helga.



Gunnar hafði marga fyrirboðsmenn og skipaði hann svo sínum
mönnum. Hann sat á miðjan bekk en innar frá Þráinn Sigfússon,
þá Úlfur aurgoði, þá Valgarður hinn grái, þá Mörður og
Runólfur, þá Sigfússynir. Lambi sat innstur. Hið næsta
Gunnari utar frá sat Njáll, þá Skarphéðinn, þá Helgi, þá
Grímur, þá Höskuldur, þá Hafur hinn spaki, þá Ingjaldur frá
Keldum, þá synir Þóris austan úr Holti. Þórir vildi sitja
ystur virðingamanna því að þá þótti hverjum gott þar sem sat.
Höskuldur sat á miðjan bekk en synir hans innar frá honum.
Hrútur sat utar frá Höskuldi. En þá er eigi frá sagt hversu
öðrum var skipað. Brúður sat á miðjum palli en til annarrar
handar henni Þorgerður dóttir hennar. Á aðra hönd sat
Þórhalla dóttir Ásgríms Elliða-Grímssonar.



Þórhildur gengur um beina og báru þær Bergþóra mat á borð.
Þráinn Sigfússon var starsýnn á Þorgerði Glúmsdóttur. Þetta
sér kona hans, Þórhildur. Hún reiðist og kveður til hans
kviðling:



"Era gapriplar góðir,

gægur er þér í augum,


Þráinn," segir hún.



Hann steig þegar fram yfir borðið og nefndi sér votta og sagði
skilið við Þórhildi "vil eg eigi hafa flimtan hennar né
fáryrði yfir mér."



Og svo var hann kappsamur um þetta að hann vildi eigi vera að
veislunni nema hún væri í braut rekin. Og það varð að hún
fór í braut. Og nú sátu menn hver í sínu rúmi og drukku og
voru kátir.



Þá tók Þráinn til orða: "Ekki mun eg gera að launtali það sem
mér býr í skapi. Þess vil eg spyrja þig Höskuldur
Dala-Kollsson, vilt þú gifta mér Þorgerði frændkonu þína?"



"Eigi veit eg það," segir Höskuldur, "mér þykir þú lítt hafa
við þessa skilið er hefir þú áður átt eða hver maður er hann,
Gunnar?"



Hann svarar: "Eigi vil eg frá segja því að mér er maðurinn
skyldur og seg þú frá Njáll, því munu allir trúa."



Njáll mælti: "Það er frá manni að segja að maður er vel
auðigur að fé og ger að sér um allt og hið mesta mikilmenni og
megið þér fyrir því gera honum kostinn."



Þá mælti Höskuldur: "Hvað sýnist þér ráð Hrútur frændi?"



Hrútur svaraði: "Gera mátt þú fyrir því kostinn að þetta er
henni jafnræði."



Þá tala þeir um kaupin og verða á allt sáttir. Stendur þá
Gunnar upp og Þráinn og ganga að pallinum. Spurði Gunnar þær
mæðgur hvort þær vildu játa þessum kaupum. Þær kváðust eigi
bregða mundu. Fastnaði Hallgerður Þorgerði dóttur sína. Þá
var skipað konum í annað sinn. Sat þá Þórhalla meðal brúða.
Fer nú boðið vel fram. Og er lokið var ríða þeir Höskuldur
vestur en Rangæingar til sinna heimila. Gunnar gaf mörgum
góðar gjafar og virðist það vel.



Hallgerður tók við búráðum og var fengsöm og atkvæðamikil.
Þorgerður tók við búráðum að Grjótá og var góð húsfreyja.

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.