Ynglinga saga 33 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Yng ch. 33)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Önundur hét sonur Yngvars er þar næst tók konungdóm í
Svíþjóð. Um hans daga var friður góður í Svíþjóð og varð hann
mjög auðigur að lausafé. Önundur konungur fór með her sinn
til Eistlands að hefna föður síns, gekk þar upp með her sinn
og herjaði víða um landið og fékk herfang mikið, fer aftur um
haustið til Svíþjóðar. Um hans daga var ár mikið í Svíþjóðu.
Önundur var allra konunga vinsælstur.
Svíþjóð er markland mikið og liggja þar svo eyðimerkur að
margar dagleiðir eru yfir. Önundur konungur lagði á það kapp
mikið og kostnað að ryðja markir og byggja eftir ruðin. Hann
lét og leggja vegu yfir eyðimerkur og fundust þá víða í
mörkunum skóglaus lönd og byggðust þar þá stór héruð. Varð af
þessum hætti land byggt því að landsfólkið var gnógt til
byggðarinnar. Önundur konungur lét brjóta vegu um alla
Svíþjóð, bæði um markir og mýrar og fjallvegu. Fyrir því var
hann Braut-Önundur kallaður. Önundur konungur setti bú sín í
hvert stórhérað á Svíþjóð og fór um allt landið að veislum.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.