Sturlu saga 1 — ed. Guðrún Nordal
Not published: do not cite (Sts ch. 1)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Sturl Þorgils hét maður og var Oddason. Hann var höfðingi mikill. Hann bjó á Staðarhóli í Saurbæ. Hallbera var móðir hans Aradóttir af Reykjahólum. Hann átti Kolfinnu dóttur Halls Styrmissonar úr Víðidal frá Ásgeirsá. Þessi voru börn þeirra, þau er úr barnæsku komust: Oddi og Einar. Dóttir þeirra var Hallbera er átti Gunnsteinn Þórisson er bjó norður í Reykjardal á Einarsstöðum, önnur var Valgerður er átti Þórhallur Finnsson austur í fjörðum í Fljótsdalshéraði, þriðja var Ólöf er átti Snorri Kálfsson er bjó á Mel í Miðfirði, fjórða Álfdís er átti Örnólfur Kollason frá Snjófjöllum úr Ísafirði, fimmta Yngvildur er átti Halldór Bergsson, sétta Ingibjörg er átti Böðvar Barkarson, sjöunda Guðrún er átti Halldór slakkafótur er bjó í Fagradal. Oddi Þorgilsson var að fóstri í Odda með Sæmundi Sigfússyni og varð hann fróður. Einar Þorgilsson var að fóstri með Þorgeiri Sveinssyni að Brunná. Viðar hét son Þorgeirs. Vermundur hinn auðgi bjó á Hóli í Saurbæ. Hann átti Þuríði Starradóttur. Þorbjörn hét son þeirra en Þóra dóttir og önnur Þorbjörg er átti Ari Einarsson Arasonar. Þóru átti Þorgils Símonarson og voru þeirra synir Gunnlaugur prestur og Jón, Vermundur og Þorgeir. Þá bjó á Stað í Hrútafirði Skeljungur Helgason. Hann átti Þorgerði dóttur Ásbjarnar hins daufa. Börn þeirra voru Helgi prestur, Narfi og Þorlaug er átti Jón Þorgilsson.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.