Orms þáttr Stórólfssonar 11 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (OStór ch. 11)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Það var einn tíma að Ormur fór á kynni þar sem hann hafði
fyrr verið í Þrándheimi. Hann kom um leið á Gimsar og var
Einar heima. Það var í þann tíma sem Einar var að kirkju.
Bogi hans var úti fyrir kirkjudyrum. Ormur gekk að og tók upp
og lagði ör á streng og dró fyrir odd og lét svo örina standa
í boganum og lagði síðan niður aftur og gekk í brottu. En er
Einar kom út sá hann hversu bogi hans var til háttaður og
undraðist mjög og spurði eftir hver með boga hans mundi farið
hafa en þess varð hann lengi ekki vís fyrr en Ormur sjálfur
sagði honum. Einar kveðst það og vita að það mundi ekki
skræfa verið hafa er boga hans hafði fyrir odd dregið.
Eiríkur jarl fór að veislum austur um Víkina. Þá var Ormur
með jarli. En er þeir komu þar sem Ormurinn langi hafði verið
upp hogginn lá þar siglutré. Jarl bað menn prófa hversu
margir þyrftu undir að ganga áður en axlað yrði. Skipaði hann
Ormi undir mitt tréð. Sex tigir manna tóku tréð. Síðan bað
jarl sinn mann tínast undan hvorum enda og svo var gert þar
til að Ormur stóð einn undir trénu. Þá gekk hann með það þrjú
fet og lagði niður síðan.
Segja menn að Ormur muni varla samur orðið hafa síðan og
áður. Var hann með jarli nokkura vetur, fór síðan út til
Íslands og settist í bú að Stórólfshvoli og þótti æ hinn
mesti maður og varð ellidauður og hélt vel trú sína.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.