Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

Nj ch. 30

Njáls saga 30 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (Nj ch. 30)

Anonymous íslendingasögurNjáls saga
293031

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):



Gunnar hélt út úr elfinni og voru þeir Kolskeggur á einu
skipi báðir en Hallvarður var á öðru skipi. Þeir sjá nú
skipin fyrir sér.



Þá mælti Gunnar: "Verum vér að nokkuru við búnir ef þeir
leita á oss en eigum ekki við þá ellegar."



Þeir gerðu svo og bjuggust við á skipum sínum. Hinir skildu í
sundur skipin og gerðu hlið í millum skipanna. Gunnar fór
fram í milli skipanna. Vandill þreif upp stafnljá og kastaði
á meðal skipanna og í skipið Gunnars og dró þegar að sér.
Ölvir hafði gefið Gunnari sverð gott. Gunnar brá nú sverðinu
og hafði hann eigi sett á sig hjálminn, hleypur þegar á saxið
á skip Vandils og hjó þegar mann til bana. Karl lagði að öðrum
megin sínu skipi og skaut spjóti um þvert skip Gunnars og
stefndi á hann miðjan. Gunnar sér þetta og snerist svo skjótt
að eigi mátti auga á festa og tók hinni vinstri hendi spjótið
og skaut á skip til Karls og hafði sá bana er fyrir varð.
Kolskeggur þreif upp akkeri og kastar á skip Karls og kom
fleinninn í borðið og gekk út í gegnum og féll þar inn sær
kolblár og hljópu menn allir af skeiðinni og á önnur skipin.
Gunnar hljóp nú aftur á sitt skip.



Þá kom að Hallvarður og tókst nú bardagi mikill. Sáu þeir nú
að formaður var öruggur og gerði hver að slíkt er mátti.
Gunnar gerði ýmist að hann hjó eða skaut og hafði margur
maður bana fyrir honum. Kolskeggur fylgdi honum vel. Karl
hljóp á skip til Vandils bróður síns og börðust þeir þaðan
báðir um daginn.



Kolskeggur tók hvíld um daginn á skipi Gunnars og sér Gunnar
það og mælti til hans: "Betri hefir þú öðrum verið í dag en
þér því að þú hefir gert þá óþyrsta."



Síðan tók Kolskeggur jústu eina af miði fulla og drakk og
barðist eftir það. Og þar kom að þeir bræður hljópu upp á
skip þeirra Vandils og gekk Kolskeggur með öðru borði en
Gunnar með öðru. Í móti Gunnari gekk Vandill og hjó þegar
til hans og kom í skjöldinn. Gunnar snaraði hart skjöldinn er
sverðið festi í og brotnaði sverðið undir hjöltunum. Gunnar
hjó í móti og sýndist hinum þrjú vera sverðin á lofti og sá
hann eigi hvar hann skyldi sér helst hlífa. Gunnar hjó undan
honum báðar fætur. Kolskeggur lagði Karl spjóti í gegnum.
Eftir það tóku þeir herfang mikið.



Þaðan héldu þeir suður til Danmerkur og þaðan austur í
Smálönd og börðust jafnan og höfðu ávallt sigur. Ekki héldu
þeir aftur að hausti.



Annað sumar héldu þeir til Rafala og mættu þar víkingum og
börðust þegar og fengu sigur. Síðan héldu þeir austur til
Eysýslu og lágu þar nokkura hríð undir nesi einu. Þeir sáu
mann einn ganga ofan af nesinu. Gunnar gekk á land upp að
finna manninn og töluðust þeir við. Spurði Gunnar hann að
nafni en hann nefndist Tófi. Gunnar spurði hvað hann
vildi.



"Þig vil eg finna," segir hann. "Herskip liggja hér öðrum
megin undir nesinu og mun eg segja þér hverjir fyrir ráða.
Þar ráða fyrir bræður tveir. Heitir annar Hallgrímur en annar
Kolskeggur. Þá veit eg mesta orustumenn og það með að þeir
hafa vopn svo góð að eigi fær önnur slík. Hallgrímur hefir atgeir
þann er hann hefir látið seiða til að honum skal ekki vopn að
bana verða nema hann. Það fylgir og að þegar veit er víg er
vegið með atgeirinum því að svo syngur í honum áður að langt
heyrir til. Svo hefir hann náttúru mikla með sér. Kolskeggur
hefir sax. Það er hið besta vopn. Þeir hafa lið þriðjungi
meira en þér hafið. Fé hafa þeir og mikið og hafa fólgið á
landi og veit eg gjörla hvar er. En þeir hafa sent
njósnarskip fyrir nesið og vita þeir allt til yðvar. Þeir
hafa nú og viðbúning mikinn og ætla þegar að yður að leggja
er þeir eru búnir. Er yður nú annaðhvort til að leggja í
braut þegar ella búist þér við sem skjótast. En ef þér hafið
sigur þá skal eg fylgja þér til fjárins alls."



Gunnar gaf honum fingurgull og gekk síðan til manna sinna og
sagði þeim að herskip lágu öðrum megin nessins "og vita þeir allt
til vor. Tökum vér nú vopn vor og búumst við öllu vel og
skjótt því að nú er til fjár að vinna."



Síðan bjuggust þeir við og þá er þeir voru búnir sjá þeir að
skipin fara að þeim. Tekst nú orusta með þeim og berjast
þeir lengi og verður mannfall mikið. Gunnar vó margan mann.
Þeir Hallgrímur hljópu á skip til Gunnars. Gunnar sneri í mót
Hallgrími. Hallgrímur lagði til hans með atgeirinum. Slá ein
var um þvert skipið og hljóp Gunnar aftur yfir öfugur.
Skjöldur Gunnars var fyrir framan slána og lagði Hallgrímur í
hann og í gegnum og svo í slána. Gunnar hjó á hönd Hallgrími
og lamdist handleggurinn en sverðið beit ekki. Féll þá niður
atgeirinn. Gunnar tók atgeirinn og lagði í gegnum Hallgrím.
Gunnar bar atgeirinn jafnan síðan. Þeir börðust nafnar og var
nær hvorum vænna horfið. Þá kom Gunnar að og hjó Kolskegg
banahögg. Eftir það beiddu víkingar sér griða. Gunnar lét
þess kost. Hann lét þá kanna valinn og taka fé það er dauðir
menn höfðu átt en hann gaf hinum vopn sín og klæði, er hann
gaf grið, og bað þá fara til fósturjarða sinna. Þeir héldu í
braut en Gunnar tók fé allt það er eftir var.



Tófi kom að Gunnari eftir bardagann og bauð að fylgja honum
til fjár þess er víkingar höfðu fólgið, kvað það vera bæði
meira og betra en hitt er þeir höfðu áður fengið. Gunnar
kveðst það vilja. Gekk hann á land með Tófa. Fór Tófi fyrir
til skógar en Gunnar eftir. Þeir komu að þar sem viður var
borinn saman mikill. Tófi segir að þar var féið undir. Ruddu
þeir þá af viðinum og fundu undir bæði gull og silfur, klæði
og vopn góð. Þeir bera fé þetta til skipa. Gunnar spurði Tófa
hverju er hann vildi að hann launaði honum.



Tófi svaraði: "Eg er danskur maður að ætt og vildi eg að þú
flyttir mig til frænda minna."



Gunnar spurði hví hann væri í Austurvegi.



"Eg var tekinn af víkingum," segir Tófi, "og var mér skotið
hér á land í Eysýslu og hefi eg hér verið síðan."

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.