Óláfs saga Tryggvasonar in Heimskringla 103 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÓTC ch. 103)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Ólafur konungur lét blása til samlögu öllum skipum sínum. Var
konungsskip í miðju liði en þar á annað borð Ormur hinn
skammi en annað borð Traninn. En þá er þeir tóku að tengja
stafnana þá bundu þeir saman stafnana á Orminum langa og
Orminum skamma. En er konungur sá það kallaði hann hátt, bað
þá leggja fram betur hið mikla skipið og láta það eigi aftast
vera allra skipa í herinum.
Þá svarar Úlfur hinn rauði: "Ef Orminn skal því lengra fram
leggja sem hann er lengri en önnur skip þá mun ávinnt verða
um söxin."
Konungur segir: "Eigi vissi eg að eg ætti stafnbúann bæði
rauðan og ragan."
Úlfur segir: "Ver þú eigi meir baki lyftingina en eg mun
verja stafninn."
Konungur hélt á boga og lagði ör á streng og sneri að Úlfi.
Úlfur mælti: "Skjót annan veg konungur, þannug sem meiri er
þörfin. Þér vinn eg það er eg vinn."
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.