Óláfs saga Tryggvasonar in Heimskringla 97 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÓTC ch. 97)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Ólafur konungur fór með liði sínu suður með landi. Sóttu þá
til fundar við hann vinir hans margir, ríkismenn þeir er til
ferðar voru búnir með konungi. Var þar hinn fyrsti maður
Erlingur Skjálgsson mágur hans og hafði hann skeið hina
miklu. Hún var þrítug að rúmatali og var það skip allvel
skipað. Þá komu og til konungs mágar hans, Hyrningur og
Þorgeir, og stýrði hvortveggi miklu skipi. Margir aðrir
ríkismenn fylgdu honum. Hann hafði sex tigu langskipa er hann
fór úr landi og sigldi suður fyrir Danmörk gegnum Eyrarsund.
Og í þeirri ferð kom Ólafur konungur til Vindlands og gerði
stefnulag við Búrisláf konung og fundust þeir konungar.
Töluðu þeir þá um eignir þær er Ólafur konungur heimti og
fóru allar ræður líklega milli konunga og var góður
greiðskapur um þær heimtingar er Ólafur konungur þóttist þar
eiga. Dvaldist Ólafur konungur þar lengi um sumarið, fann þar
marga vini sína.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.