Magnússona saga 23 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Msona ch. 23)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Eysteinn konungur lét gera skip mikið í Niðarósi. Það var
gert að vexti og með hætti eftir því sem Ormur hinn langi
hafði verið er Ólafur Tryggvason hafði gera látið. Var þar og
drekahöfuð á fram en krókur á aftur og hvorttveggja gullbúið.
Skip var borðmikið en stafnarnir þóttu nokkuru minni en best
bæri. Hann lét og gera þar í Niðarósi naust bæði svo stór að
afrek var í og ger með hinum bestum föngum og smíðuð ágæta
vel.
Eysteinn konungur var á veislu á Stim á Hússtöðum. Þar fékk
hann bráðasótt þá er hann leiddi til bana. Hann andaðist
fjórða Kalendas Septembris og var lík hans flutt norður til
Kaupangs og er hann þar jarðaður í Kristskirkju. Og er það
mál manna að yfir einskis manns líki hafi svo margur maður í
Noregi jafnhryggur staðið sem Eysteins konungs síðan er
andaður var Magnús konungur, sonur Ólafs hins helga konungs.
Eysteinn var konungur tuttugu vetur að Noregi. En eftir
andlát Eysteins konungs var Sigurður einn konungur í landi
meðan hann lifði.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.