Magnúss saga blinda ok Haralds gilla 15 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (MbHg ch. 15)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Sigurður þóttist finna að eigi mundi honum til hjálpar að
leita á fund Haralds konungs og var þá í fylgsnum allt
haustið og öndurðan vetur. Hann var í býnum í Björgyn með
presti nokkurum og gildraði til ef hann mætti verða
skaðamaður Haralds konungs og voru mjög margir menn að þessum
ráðum með honum og þeir sumir er þá voru hirðmenn og
herbergismenn Haralds konungs og þeir höfðu fyrr verið
hirðmenn Magnúss konungs. Voru þeir þá í kærleikum miklum við
Harald konung svo að æ var nokkur af þessum sá er sat yfir
borði konungsins. Lúsíumessu að kveldi töluðust við tveir
menn er þar sátu.
Mælti annar til konungs: "Herra, nú höfum við skotið úrskurð þrætu okkarrar til yðarra úrslita og höfum við veðjað ask hunangs hvor okkar. Eg segi það að þér munuð liggja í nótt hjá Ingiríði drottningu konu þinni en hann segir að þér munuð liggja hjá Þóru Guttormsdóttur."
Þá svaraði konungur hlæjandi og var mjög óvitandi að þessi spurning væri með svo mikilli vél og segir: "Eigi muntu hljóta veðféið."
Af því þóttust þeir vita hvar hans var að vitja á þeirri nótt
en höfuðvörður var þá haldinn fyrir því herbergi er flestir
hugðu að konungur væri inni í og drottning svaf í.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.