Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

Ldn ch. 42

Landnámabók 42 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (Ldn ch. 42)

Anonymous íslendingasögurLandnámabók
4243

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):



Steinólfur hinn lági son Hrólfs hersis af Ögðum nam land inn
frá Klofasteinum til Grjótvallarmúla og bjó í Fagradal á
Steinólfshjalla. Hann gekk þar inn á fjallið og sá fyrir
innan dal mikinn og vaxinn allan viði. Hann sá eitt rjóður í
dal þeim; þar lét hann bæ gera og kallaði Saurbæ, því að þar
var mýrlent mjög, og svo kallaði hann allan dalinn. Það
heitir nú Torfnes, er bærinn var gör.



Steinólfur átti Eirnýju Þiðrandadóttur. Þorsteinn búandi var
son þeirra, en Arndís hin auðga var dóttir þeirra, móðir
Þórðar, föður Þorgerðar, er Oddur átti; þeirra son var Hrafn
Hlymreksfari, er átti Vigdísi dóttur Þórarins fylsennis;
þeirra son var Snörtur, faðir Jódísar, er átti Eyjólfur
Hallbjarnarson, þeirra dóttir Halla, er átti Atli Tannason,
þeirra dóttir Yngvildur, er átti Snorri Húnbogason.



Steinólfi hurfu svín þrjú; þau fundust tveim vetrum síðar í
Svínadal, og voru þau þá þrír tigir svína.



Steinólfur nam og Steinólfsdal í Króksfirði.



Sléttu-Björn hét maður; hann átti Þuríði dóttur Steinólfs
hins lága; hann nam með ráði Steinólfs hinn vestra dal í
Saurbæ; hann bjó á Sléttu-Bjarnarstöðum upp frá Þverfelli.
Hans son var Þjóðrekur, er átti Arngerði, dóttur Þorbjarnar
Skjalda-Bjarnarsonar; þeirra son var Víga-Sturla, er bæinn
reisti á Staðarhóli, og Knöttur faðir Ásgeirs og Þorbjörn og
Þjóðrekur, er borgin er við kennd á Kollafjarðarheiði.



Þjóðreki Sléttu-Bjarnarsyni þótti of þrönglent í Saurbæ; því
réðst hann til Ísafjarðar; þar gerðist saga þeirra Þorbjarnar
og Hávarðar hins halta.



Óláfur belgur, er Ormur hinn mjóvi rak á brutt úr Óláfsvík,
nam Belgsdal og bjó á Belgsstöðum, áður þeir Þjóðrekur ráku
hann á brutt; síðan nam hann inn frá Grjótvallarmúla og bjó í
Óláfsdal. Hans son var Þorvaldur, sá er sauðatöku sök seldi á
hendur Þórarni gjallanda Ögmundi Völu-Steinssyni; fyrir það
vó hann Ögmund á Þorskafjarðarþingi.



Gils skeiðarnef nam Gilsfjörð milli Óláfsdals og
Króksfjarðarmúla; hann bjó á Kleifum. Hans son var Heðinn,
faðir Halldórs Garpsdalsgoða, föður Þorvalds í Garpsdal, er
átti Guðrúnu Ósvífursdóttur.

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.