Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

HHárf ch. 35

Haralds saga hárfagra 35 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (HHárf ch. 35)

HeimskringlaHaralds saga hárfagra
343536

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):



Haraldur konungur var þá fimmtugur að aldri er synir hans
voru margir rosknir en sumir dauðir. Þeir gerðust margir
ofstopamenn miklir innanlands og voru sjálfir ósáttir. Þeir
ráku af eignum jarla konungs en suma drápu þeir.



Haraldur konungur stefndi þá þing fjölmennt austur í landi og
bauð til Upplendingum. Þá gaf hann sonum sínum konunganöfn og
setti það í lögum að hans ættmanna skyldi hver konungdóm taka
eftir sinn föður en jarldóm sá er kvensifur væri af hans ætt
kominn. Hann skipti landi með þeim, lét hafa Vingulmörk,
Raumaríki, Vestfold, Þelamörk. Það gaf hann Ólafi, Birni,
Sigtryggi, Fróða, Þorgísli. En Heiðmörk og Guðbrandsdali gaf
hann Dag og Hring og Ragnari. Snæfríðarsonum gaf hann
Hringaríki, Haðaland, Þótn og það er þar liggur til. Guttormi
hafði hann gefið til yfirsóknar frá Elfi til Svínasunds og
Ranríki. Hann hafði hann sett til landvarnar austur við
landsenda sem fyrr er ritað.



Haraldur konungur sjálfur var oftast um mitt land. Hrærekur
og Guðröður voru jafnan innan hirðar með konungi og höfðu
veislur stórar á Hörðalandi og Sogni.



Eiríkur var með Haraldi konungi föður sínum. Honum unni hann
mest sona sinna og virti hann mest. Honum gaf hann Hálogaland
og Norð-Mæri og Raumsdal. Norður í Þrándheimi gaf hann
yfirsókn Hálfdani svarta og Hálfdani hvíta og Sigröði.



Hann gaf sonum sínum í hverju þessu fylki hálfar tekjur við
sig og það með að þeir skyldu sitja í hásæti skör hærra en
jarlar en skör lægra en sjálfur hann. En það sæti eftir hans
dag ætlaði sér hver sona hans en hann sjálfur ætlaði það
Eiríki. En Þrændir ætluðu það Hálfdani svarta en Víkverjar og
Upplendingar unnu þeim best ríkis er þar voru þeim undir
hendi. Af þessu varð þar mikið sundurþykki enn af nýju milli
þeirra bræðra.



En með því að þeir þóttust hafa lítið ríki þá fóru þeir í
hernað, svo sem sagt er að Guttormur féll í Elfarkvíslum
fyrir Sölva klofa. Eftir það tók Ólafur við því ríki er hann
hafði haft. Hálfdan hvíti féll á Eistlandi. Hálfdan háleggur
féll í Orkneyjum. Þeim Þorgísli og Fróða gaf Haraldur
konungur herskip og fóru þeir í vesturvíking og herjuðu um
Skotland og Bretland og Írland. Þeir eignuðust fyrst
Norðmanna Dyflinni. Svo er sagt að Fróða væri gefinn
banadrykkur en Þorgils var lengi konungur yfir Dyflinni og
var svikinn af Írum og féll þar.

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.