Bandamanna saga 8 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Band ch. 8)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Nú ríða þeir höfðingjarnir til þings og fjölmenna
mjög. Ófeigur karl var í flokki Styrmis. Þeir bandamenn
mæltu mót með sér á Bláskógaheiði. Egill og Gellir og
Styrmir og Hermundur og Þórarinn, ríða nú allir saman
suður til vallarins. Þeir ríða austan, Skegg-Broddi og
Þorgeir Halldóruson úr Laugardal, en Járnskeggi norðan og
hittast hjá Reyðarmúla. Ríða nú allir flokkarnir ofan á
völluna og svo á þing. Þar er nú flest um talað sem mál
Odds eru. Þykir það öllum mönnum víst vera að hér mun
engi fyrir svara, ætla það að fáir þori, enda geri engum,
slíkir höfðingjar sem til móts eru. Þykir þeim og allvænt
um sitt mál og brasta allmikið. Engi er sá er í móti þeim
kasti einu orði. Oddur hefir engum manni um sitt mál
boðið. Býr hann skip sitt í Hrútafirði þegar menn voru
til þings farnir.
Það var einn dag er Ófeigur karl gekk frá búð sinni og
var áhyggjumikið, sér engva liðveislumenn sína en þótti
við þungt að etja, sér varla sitt færi einum við slíka
höfðingja en í máli voru engar verndir, fer hækilbjúgur,
hvarflar í milli búðanna og reikar á fótum, fer þannig
lengi, kemur um síðir til búðar Egils Skúlasonar. Þar
voru þá menn komnir til tals við Egil. Ófeigur veik hjá
búðardyrunum og beið þar til þess er mennirnir gengu í
brott. Egill fylgdi þeim út en er hann ætlar inn að ganga
þá snýr Ófeigur fyrir hann og kvaddi Egil.
Hann leit við honum og spurði hver hann væri.
"Ófeigur heiti eg," segir hann.
Egill mælti: "Ertu faðir Odds?"
Hann kvað svo vera.
"Þá muntu vilja tala um mál hans en það þarf ekki við
mig að tala. Miklu er því meir fyrir komið en eg megi þar
neitt til leggja. Eru og aðrir meir fyrir því máli en eg,
Styrmir og Þórarinn. Láta þeir mest til sín taka þó að
vér fylgjum þeim að."
Ófeigur segir og varð staka á munni:
Fyrr var sæmra
til sonar hugsa.
Gekk eg aldregi
Odds að sinni.
Sá hann lítið
til laga, gassi,
þótt fjár hafi
fullar gnóttir.
Og enn kvað hann:
Það er nú gömlum
gleði heimdraga
að spjalla helst
við spaka drengi.
Muntu eigi mér
máls um synja
því að virðar þig
vitran kalla.
"Mun eg fá mér annað til skemmtanar en tala um mál
Odds. Hefir það verið ríflegra en nú. Muntu eigi vilja
synja mér máls. Er það nú helst gaman karls að tala við
þess háttar menn og dvelja svo af stundir."
Egill segir: "Eigi skal varna þér máls."
Ganga þeir nú tveir saman og setjast niður.
Þá tekur Ófeigur til orða: "Ertu búmaður, Egill?"
Hann kvað svo.
"Býrð þú þar að Borg?"
"Það er satt," segir Egill.
Ófeigur mælti: "Vel er mér frá þér sagt og
skapfelldlega. Er mér sagt að þú sparir við engan mann
mat og sért rausnarmaður og okkur sé ekki ólíkt farið,
hvortveggi maðurinn ættstór og góður af sínu en óhægur
fjárhagurinn. Og það er mér sagt að þér þyki gott vinum
þínum að veita."
Egill segir: "Vel þætti mér að mér væri svo farið að
frétt sem þér því að eg veit að þú ert ættstór og vitur."
Ófeigur mælti: "Það er þó ólíkt því að þú ert höfðingi
mikill og óttast ekki hvað sem fyrir er og lætur aldrei
þinn hlut við hvern sem þú átt en eg lítilmenni. En
skaplyndi kemur saman helst með okkur og er það harmur
mikill er slíka menn skal nokkuð fé skorta er svo eru
miklir borði."
Egill segir: "Það kann vera að það skiptist brátt að
hægist ráðið."
"Hversu kemur það til?" kvað Ófeigur.
"Þannig hyggst mér," segir Egill, "ef undir oss ber
féð Odds að þá muni fátt skorta því að oss er þar mikið
af sagt auð þeim."
Ófeigur segir: "Eigi mun það aukið þó að hann sé
sagður ríkastur maður á Íslandi. En þó mun þér forvitni á
hver þinn hlutur verður af fénu því að þú ert þess mjög
þurfi."
"Það er satt," kvað Egill, "og ertu góður karl og
vitur og muntu vita gjörla um fé Odds."
Hann segir: "Þess vænti eg að það sé eigi öðrum
kunnigra en mér og kann eg það að segja þér að engi segir
svo mikið frá að eigi sé þó meira. En þó hefi eg hugsað
um áður fyrir mér hvað þú munt af hljóta."
Og varð honum vísa á munni:
Satt er að sækir átta
seims ágirni beima,
orð gerast auðar Njörðum
ómæt, og ranglæti.
Ynni eg yðr, fyrir mönnum,
Iðja hlátr að láta,
Þundum þykkra randa
þeys, og sæmdarleysis.
"Hvað? Mundi það ólíklegt," segir Egill, "og ertu
skáld gott."
Ófeigur mælti: "Ekki skal það draga fyrir þér hverja
fullsælu þú munt upp taka en það er hinn sextándi hlutur
úr Melslandi."
"Heyr á endemi," segir Egill. "Eigi er þá féð
jafnmikið sem eg hugði. Eða hversu má þetta vera?"
Ófeigur segir: "Eigi er það, allmikið er féð. En þess
væntir mig að þessu næst munir þú hljóta. Hafið þér eigi
svo talað að þér skylduð hafa hálft fé Odds en
fjórðungsmenn hálft? Þá telst mér þannig til ef þér eruð
átta bandamenn að þér munið hafa hálft Melsland, því að
svo munuð þér til ætla og svo mælt hafa, þó að þér hafið
þetta með fádæmum upp tekið meirum en menn viti dæmi til,
þá munuð þér þessi atkvæði haft hafa. Eða var yður nokkur
von á því að Oddur son minn mundi sitja kyrr fyrir geisan
yðvarri er þér riðuð norður þangað? Nei, "segir hann
Ófeigur, "eigi verður yður hann Oddur ráðlaus fyrir og
svo mikla gnótt sem hann hefir til fjár þá hefir hann þó
eigi minni gæfu til vitsmunanna og til ráðagerða þegar
hann þykist þess við þurfa. Og það grunar mig að eigi
skríður að síður knörrinn undir honum um Íslandshaf þó að
þér kallið hann sekjan. En það má eigi sekt heita er svo
er ranglega upp tekið og mun á þá falla er með fara og
þess væntir mig að hann muni nú í hafi með allt sitt nema
landið á Mel. Það ætlar hann yður. Frétt hafði hann það
að eigi var löng sjávargata til Borgar ef hann kæmi á
Borgarfjörð. Nú mun þetta svo setjast sem upp var hafið
að þér munuð fá af skömm og svívirðing og gengur þó að
maklegleikum og þar með hvers manns ámæli."
Þá segir Egill: "Þetta mun vera dagsanna og eru nú
brögð í málinu. Var það miklu líkara að Oddur mundi eigi
sitja ráðlaus fyrir. Og mun eg eigi að þessu telja því að
eru þeir sumir í málinu er eg ann vel svívirðingar af og
mest æsa málið, svo sem er Styrmir eða Þórarinn og
Hermundur."
Ófeigur mælti: "Það mun fara sem betur er, en það mun
fara sem maklegt er að þeir munu fá margs manns ámæli af
þessu. En það þykir mér illa er þú hefir eigi góðan hlut
af því að þú fellst mér vel í geð og best af yður
bandamönnum."
Lætur hann nú síga fésjóð einn digran niður undan
kápunni. Egill brá til augum.
Ófeigur finnur það, kippir upp sem skjótast undir
kápuna og mælti: "Á þá leið er Egill," segir hann, "að
mig væntir að því nær skal fara sem eg hef sagt þér. Nú
mun eg gera þér sæmd nokkura" vindur nú upp sjóðnum og
steypir úr silfrinu í skikkjuskaut Egils. Það voru tvö
hundruð silfurs þess er best kunni verða. "Þetta skaltu
þiggja af mér ef þú gengur eigi í móti málinu og er þetta
nokkur sæmdarhlutur."
Egill segir: "Það ætla eg að þú sért eigi meðalkarl
vondur. Er þér engi þess von að eg muni vilja rjúfa særi
mín."
Ófeigur segir: "Eigi eruð þér þó slíkir sem þér
þykist. Viljið heita höfðingjar en kunnið yður engan
fögnuð þegar þér komið í nokkurn vanda. Nú skaltu eigi
svo með fara heldur mun eg hitta það ráð að þú munt halda
særi þín."
"Hvert er það?" segir Egill.
Ófeigur mælti: "Hafið þér eigi svo mælt að þér skylduð
hafa sektir eða sjálfdæmi?"
Egill kvað svo vera.
"Það kann vera," segir Ófeigur, "að oss frændum Odds
sé þess unnt að kjósa hvort vera skal. Nú mætti svo til
bera að undir þig kæmi gerðin. Vil eg þá að þú stillir
henni."
Egill segir: "Satt segir þú og ertu slægur karl og
vitur. En þó verð eg eigi til þess búinn og hvorki hefi
eg til mátt né liðsafla að standa einn í mót þessum
höfðingjum öllum því að fjandskapur mun fyrir koma ef
nokkur rís við."
Ófeigur mælti: "Hvern viltu helst til kjósa af
bandamönnum? Láttu svo sem eg eigi á öllum völ."
"Tveir eru til," segir Egill. "Hermundur er mér næstur
og er illa með okkur en annar er Gellir og hann mun eg
til kjósa."
"Það er mikið til að vinna," segir Ófeigur, "því að
öllum ynni eg ills hlutar af þessu máli nema þér einum.
En hafa mun hann vit til þess að sjá hvort betra er af að
kjósa, að hafa fé og sæmd eða missa fjár og taka við
óvirðing. Eða viltu nú ganga í málið, ef undir þig kemur,
til þess að minnka gerðina?"
"Það ætla eg víst," segir Egill.
"Þá skal þetta vera fast með okkur," segir Ófeigur,
"því að eg mun koma hingað til þín af annarri stundu."
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.