Haralds saga Sigurðssonar 73 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (HSig ch. 73)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Vetur þenna fór Haraldur konungur upp á Raumaríki og hafði
lið mikið. Bar hann sakar á hendur bóndum, þær að þeir hefðu
haldið fyrir honum skyldum og sköttum en eflt fjandmenn hans
til ófriðar við hann. Hann lét taka bændur, hamla suma, suma
drepa en marga ræna aleigunni. Þeir flýðu er því komu við.
Allvíða lét hann brenna héruðin og gerði aleyðu.
Svo segir Þjóðólfur:
Tók Hólmbúa hneykir
harðan taum við Rauma.
Þar hykk fast hins frækna
fylking Haralds gingu.
Eldr var ger að gjaldi.
Gramr réð en þá téði
hár í hóf að færa
hrótgarmr bændr arma.
Síðan fór Haraldur konungur upp á Heiðmörk og brenndi þar og
gerði þar hervirki eigi minna en hisug. Þaðan fór hann út á
Haðaland og út á Hringaríki, brenndi þar og fór allt
herskildi.
Svo segir Þjóðólfur:
Gagn brann greypra þegna.
Glóð varð föst í tróði.
Laust hertoga hristir
Heina illum steini.
Lífs báðu sér lýðir.
Logi þingaði Hringum
nauðgan dóm áðr næmist
niðrfall Hálfs galla.
Eftir það lögðu bændur allt sitt mál undir konung.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.