Magnúss saga ins góða 12 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (MGóð ch. 12)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Hárekur úr Þjóttu sat heima að búum sínum allt þar til er Magnús Ólafsson kom í land og hann var konungur. Þá fór Hárekur suður til Þrándheims á fund Magnúss konungs. Þá var þar með Magnúsi konungi Ásmundur Grankelsson. En er Hárekur gekk upp af skipi, er hann kom til Niðaróss, en Ásmundur stóð í loftsvölum hjá konungi, þeir sáu Hárek og kenndu.
Ásmundur mælti til konungs: "Nú vil eg gjalda Háreki dráp föður míns."
Hann hafði í hendi breiðöxi litla og þunnslegna.
Konungur leit til hans og mælti: "Haf heldur öxi mína."
Sú var veggslegin og þykk.
Enn mælti konungur: "Ætla svo Ásmundur að hörð munu bein í þeim karli."
Ásmundur tók öxina og gekk ofan úr garðinum. Og er hann kom ofan á þverstrætið þá gengu þeir Hárekur neðan í mót. Ásmundur hjó í höfuð Háreki svo að þegar stóð öxin í heila niðri. Var það bani Háreks. En Ásmundur gekk upp aftur í garðinn til konungs og var egg öll fallin úr öxinni.
Þá mælti konungur: "Hvernig mundi nú hafa dugað hin þunna öx? Mér sýnist sem þessi sé nú ónýt."
Síðan gaf Magnús konungur Ásmundi lén og sýslu á Hálogalandi og eru þar margar frásagnir miklar um skipti þeirra Ásmundar og sona Háreks.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.