Íslendinga saga 327 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Ísls ch. 327)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Um sumarið eftir er Hallvarður kom út var þingreið mikil norðan úr sveitum. Fjölmennti Gissur jarl mjög og reið Ásgrímur Þorsteinsson þá til þings með honum. Hrafn fjölmennti og mjög vestan. Reið með honum á þing Hallvarður gullskór og Einar Vatnsfirðingur og Vigfús Gunnsteinsson og mundu þeir hafa sex hundruð manna. Gissur jarl hafði eigi færra með því liði er hann tók upp suður en átta hundruð manna. Var á því þingi svarinn skattur Hákoni konungi um allan Norðlendingafjórðung og Sunnlendingafjórðung fyrir vestan Þjórsá. Skattur var þá og svarinn um allan Vestfirðingafjórðung. Tólf menn sóru skatt í Norðlendingafjórðungi: Ásgrímur Þorsteinsson, Hallur kvistur og Guðríkur; úr Eyjafirði: Hallur af Möðruvöllum, Þorvarður af Saurbæ, Guðmundur frá Hrafnagili; úr Skagafirði: Geir auðgi Þorvaldsson, Kálfur og Þorgeir Brandssynir; fyrir vestan Vatnsskarð: Bjarni á Auðkúlustöðum, Sigurður úr Hvammi, Illugi Gunnarsson. Tólf menn sóru og skatt úr Vestfirðingafjórðungi. Á því þingi sættust þeir Gissur jarl og Hrafn. Voru þá tryggðir veittar. Gissur jarl gekk þar til, Hrafn og Sturla son hans. Tókust þeir í hendur fyrir kirkjudurum á alþingi. Var þar við Sigvarður biskup og Brandur ábóti Jónsson og Sighvatur Böðvarsson og Sturla Þórðarson. Þann vetur sat Hákon konungur í Niðarósi.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.