Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

ÞorvT ch. 1

Þorvalds þáttr tasalda 1 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (ÞorvT ch. 1)

Anonymous íslendingaþættirÞorvalds þáttr tasalda
1

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):


Á þessu sama sumri sem nú var frá sagt kom til Noregs utan af
Íslandi Þorvaldur tasaldi systurson Víga-Glúms. Hann var
fríður maður sýnum, mikill og styrkur og ör af peningum.
Þorvaldur kom af hafi utan að Þrándheimi. Lagði hann inn til
Niðaróss.



Ólafur konungur var þar fyrir í bænum, nýkominn sunnan úr
landi. Og þegar konungur vissi að þar voru komnir kaupmenn
heiðnir af Íslandi þá boðaði hann Þorvaldi á sinn fund og bað
hann láta skírast. Þorvaldur játaði að vinna það til vinganar
konungs að láta skírast og taka við kristni. Konungur sagði
að hann skyldi því alvörulegri fá hans vináttu sem hann léti
auðveldlegar að hans orðum og boðskap. Var Þorvaldur þá
skírður og hans skipverjar. Þorvaldur var með konungi um
veturinn í góðri sæmd.



Sigurður hét hirðmaður konungs en annar Helgi. Báðir voru
þeir gildir menn fyrir sér og kærir konungi en þó mjög
óskaplíkir. Sigurður var vinsæll við alþýðu en Helgi ódæll og
undirförull. Þorvaldi tasalda var skipað að sitja í milli
þeirra um veturinn. Helgi öfundaði Þorvald og afþokkaði allt
fyrir honum en Sigurður var vel til hans og flýði Helgi þaðan
af bekkinum og vildi eigi sitja hjá þeim Þorvaldi. Tók hann
þá að rægja Þorvald sem mest við konung allt þar til er
konungur bað hann hætta.



"Þarftu hvorki," sagði konungur, "að rægja Þorvald við mig né
aðra menn þá er með mér eru því að eg vil sjálfur reyna menn
mína."



Helgi leitaði þá ef Sigurður vildi ýfast við Þorvald og rægði
hann fyrir honum.



Sigurður svarar: "Eigi mun eg fyrir þín orð óþokkast við
Þorvald því að hann er reyndur að góðum dreng en þú ert
illmenni."



Nú með því að Helgi létti enn eigi af heldur var hann
kostgæfur á rógið þá kom svo um síðir að konungur gerðist fár
við Þorvald.



Einn dag mælti Helgi til Þorvalds: "Spyr þú konunginn eftir
hví hann er svo fálátur."



Þorvaldur svarar: "Ekki geri eg fyrir orð þín eða eggjan og
svo vænti eg að konungur trúi eigi rógi þínu þó að honum
mislíki nokkur hlutur til mín."



Helgi mælti: "Drjúglega lætur landi enn."



Nokkuru síðar mælti Þorvaldur einn dag er hann kom fyrir
konung: "Herra, dirfð er mér í að frétta eftir ógleði
yðvarri. Ef sótt veldur þá er vandsén bótin. Veldur annar
áhugi eða nokkur tilfelli af manna völdum þá má vera að
bætist með yðvarri gift og hamingju."



Konungur svarar: "Eigi er eg sjúkur."



Þorvaldur mælti: "Þá er þegar nær er af er hinn harðasti. Eru
menn sakbitnir við yður?"



Konungur sagði að svo var "og má hefna. En þú ert skyldur til
Þorvaldur að losa þetta vandkvæði er þú hefir fyrstur eftir
frétt."



Þorvaldur mælti: "Allir yðrir menn eru skyldir að gera það er
þér bjóðið en vita verð eg hvar til þetta heyrir þó að eg sé
vanfær til að leysa."



Konungur mælti: "Bárður digri heitir maður upplenskur að ætt,
auðigur að peningum. Dóttur eina barna á hann er heitir Þóra.
Bárður er hniginn á efra aldur. Hann býr á Upplöndum þar sem
heitir í Úlfarsdölum. Hann á mikinn bæ og veglegan. Dóttir
hans Þóra er með honum en ekki verða menn þar við mannfjölda
varir. Nú líkar mér það lítt er Bárður vill eigi við trú taka
og eigi koma á minn fund. Eg hefi sent til hans tvisvar tólf
menn og hafa engir aftur komið."



Þorvaldur mælti: "Er Bárður þessi blótmaður mikill?"



Konungur svarar: "Ekki vita menn til þess því að ekki er hof
á bæ hans og þykir mönnum Bárður mjög kynlegur og óvísir eru
mönnum hættir hans og framferði."



Þorvaldur mælti: "Gjarna vildi eg fá gleði yðra herra. Nú mun
eg fara að hitta Bárð ef þér viljið hvað sem fleira gerist
að."



Konungur sagðist það vilja.



Helgi varð við þetta glaður því að hann vænti að Þorvaldur
mundi eigi aftur koma heldur en aðrir þeir er þessa ferð
höfðu farið. Síðan bjóst Þorvaldur og bað konungur hann hafa
menn svo marga sem hann vildi.



Þorvaldur svarar: "Sigurð sessunaut minn hefi eg reynt að
dyggum manni og góðum. Hann vil eg að fari með mér en ekki
fleiri því að gift yður og hamingja herra má oss meira en
menn nokkurir."



Konungur svarar: "Víst skal eg minn góðvilja til leggja með
ykkur. En eg vil senda ykkur til bónda þess er Björn heitir.
Hann býr skammt frá Bárði. Hann þykir mér vænstur til að
kunna yður nokkuð af að segja háttum Bárðar og vísa ykkur
þangað leið."



Síðan fóru þeir og komu til Bjarnar og tók hann við þeim vel
þegar hann vissi að þeir voru sendimenn konungs. Spurðu þeir
hann að híbýlum og háttum Bárðar.



Björn kvað með undrum hans hag fram flytjast: "Þar verður
ekki við menn vart þá er þangað er komið en þar fara allar
sýslur fram vel og skipulega."



Um nóttina er þeir voru sofnaðir þá dreymdi Þorvald að honum
þótti Ólafur konungur koma að sér og mæla: "Þú munt finna að
höfði þér dúk einn er þú vaknar og er þar knýtt í bréf það er
á eru rituð nöfn guðs. Það bréf skaltu láta koma á morgun
fyrir brjóst þér og vefja dúkinum að utan og um búk þér svo
sem hann tekur. Þá mun þér duga að ganga djarflega að Bárði."



Þorvaldur vaknaði og fann dúkinn og bjó um sem honum var
kennt. Um morguninn leiddi Björn bóndi þá úr garði og vísaði
þeim leið til bæjar Bárðar. Var þar að fara yfir skóg
nokkurn. En er þeir komu fram úr skóginum sáu þeir bæ mikinn
og var skíðgarður hár um. Gengu þeir til bæjarins.
Grindarhlið var opið á garðinum og svo dyr á húsum. Þeir sáu
ekki manna úti. Þeir gengu í anddyrið og lituðust um. Voru
þar hús stór og þili nýskafin. Skáli var á aðra hönd,
tjaldaður allur og búinn vel. Bárður sat í öndvegi. Hann var
sköllóttur í skarlatsklæðum og hélt á hjartskinnsglófum en
kona mikil og væn sat við borða. Ekki sáu þeir þar fleira
manna.



Bárður mælti: "Hvað er komið í anddyrið?"



Þeir nefndu sig, sögðust vera konungsmenn.



Bárður mælti: "Hvert erindi hafið þið hingað tveir einir
saman?"



Þorvaldur svarar: "Lið okkart er svo margt fyrir durum að þig
mun mega færa nauðigan á konungs fund ef þú vilt eigi fara
lostigur."



Bárður snaraði þá glófana sundur milli handa sér og kvað
þetta við:



Hugði eg hitt að eg hefði

harðhendið það stundum,

að eg skálpgrana skoskum

skyldi eg einn of halda.


Þorvaldur mælti: "Reynum við nú þá og tökumst til."



Réð Þorvaldur þá á Bárð og sviptust þeir fast. Þá var dagur
mjög á liðinn. Þeir áttust við um stund og varð Þorvaldur
mjög aflvani. Bað hann þá guð hljóðlega veita sér nokkurn
styrk móti honum en Bárður gekk þá að sem fastast. Og er
brjóstin þeirra mættust þá var því líkt sem maður gengi að
honum og kippti fótum undan Bárði svo að hann féll að
þreskeldinum. Voru þeir Þorvaldur þá báðir svo móðir að þeir
máttu ekki að hafast.



Þá mælti Bárður: "Dugi þú nú Þóra."



Hún svarar: "Ekki má eg duga þér faðir því að við Sigurður
sviptumst og er hér allvel á komið er við erum jafnstyrk."



Bárður mælti: "Þá verður nú til þess að taka sem eg hefi eigi
fyrr þurft, að biðja mér liðs í móti einum. Gangi nú fram
þeir er undirskálann byggja og veiti mér."



Hljópu þar þá fram fjórir tigir manna. Voru þeir Þorvaldur þá
handteknir.



Bárður mælti: "Vel hafa skálans undirbúar veitt mér Þóra og
svo mun enn ef eg þarf nokkurs við og því þykir mér ráð að
þeir Sigurður séu eigi í böndum. En þó vil eg eigi að þú
rennir oftar á mig, tröllið, þó að þú nefndist Þorvaldur því
að eigi skortir þig dirfð og áræði. En þó má vera að þú
skulir maður heita og munt vera heldur fjölkunnigur því að
ekki varð mér aflskortur við þig fyrrum en eg hygg að þú
hafir ragnað að mér svo rammar vættir að eg varð að falla
fyrir því að það varð aldrei fyrr að eg félli fyrir einum. En
hér verðið þið að vera í nótt þó að þið séuð hræddir hversu
við ykkur mun búið."



Var þeim þá sett borð og búið vel. Skorti þar þá hvorki vist
né drykk góðan.



En er þeir voru mettir mælti Bárður: "Ekki tel eg mat eftir
ykkur en vel djarflega þætti mér þið snæða þó að þið væruð
með öllu óhræddir menn og með vinum komnir."



Var þeim síðan fylgt til sængur og sváfu vel þá nótt. Um
morguninn er þeir voru braut búnir bað Bárður menn sína
fylgja þeim af garði. En er þeir voru út komnir litaðist
Þorvaldur um og sá enga menn hjá þeim.



Hann mælti þá: "Það vildi Bárður nú að við færum burtu og
ættumst vér ekki fleira við en það skal nú eigi vera. Finna
skulum við hann enn áður."



Gengu þeir þá inn.



Bárður mælti: "Þið eruð allundarlegir menn, genguð út en
fóruð eigi í braut. Hví kunnið þið ekki að hræðast sem aðrir
menn eða er ykkur allannt til að deyja?"



Þorvaldur svaraði: "Því hurfum við aftur að eg vildi eigi
drepa niður góðræði mínu en sæmd þinni. Erum við víst eigi
svo hræddir að við þorum eigi að flytja til fullnaðar konungs
erindi. Nú vil eg þess beiða að þú farir sjálfviljandi með
mér á konungs fund."



Bárður mælti: "Hví spyrð þú eigi þess fyrst hvern átrúnað eg
hefi?"



"Því, að mér er þar engi forvitni á," segir Þorvaldur.



Bárður mælti: "Það vil eg þér þó kunnigt gera að eg trúi ekki
á skurðgoð eða fjandur. Eg hefi farið land af landi og mætt
bæði risum og blámönnum og fyrirkomu þeir mér ekki. Hefi eg
því lengi trúað á mátt minn og megin. En nú er mér orðinn
váljúgur hið fyrsta sinn að þeim átrúnaði og sé eg það að
ekki hefðir þú sigrað mig ef þú nytir engis að nema sjálfs
þíns. Eða hvað var fyrir brjósti þér þá er bringspelir okkrir
komu saman? Þar er mér grunur á að sá mun mikið mega er sá
afspringur er af kominn."



Þorvaldur svarar: "Rétt innir þú að sá er máttugur því að það
eru nöfn guðs þess er vér kristnir menn trúum á."



Bárður mælti: "Eigi kann eg það að hugsa að eigi muni hann
öllu mega orka ef hann kemur sjálfur til er mér vann nú að
fullu er nöfn hans voru. Og fyrir því mun eg fara með þér á
konungs fund að eg skil að gott mun á þann guð að trúa er svo
er máttugur ef á nokkurn skal trúa. En því lét eg gera
undirskálann og setti eg þar mína menn að ef fjölmenni væri
dregið að mér ætlaði eg til þeirra að taka og njóta
liðsmunar. En ef til mín kæmu tveir eða þrír þá gaf eg mér
ekki um því að eg þóttist eigi uppnæmur fyrir þeim. Hér eru
og menn Ólafs konungs fjórir og tuttugu er hann hefir sent
til mín. Eru þeir hér allir vel haldnir en eigi drepnir sem
konungur mundi ætla."



Síðan bjóst Bárður og fór með Þorvaldi við alla sína menn á
konungs fund.



En er þeir komu nær bænum í Niðarósi þá mælti Bárður: "Far þú
nú Þorvaldur til konungs og seg honum að vér viljum hér
skírðir vera sem nú erum vér komnir því að vér viljum eigi að
fjölmenni hlæi að er vér erum afklæddir svo gamlir."



Þorvaldur fór til konungs og sagði honum allt um sína ferð og
hvar þá var komið. Ólafur konungur varð við þetta glaður og
fór þegar með kennimenn til fundar við Bárð.



Bárður fagnaði vel konungi og mælti: "Máttkum guði stýrir þú
herra konungur og fyrir því að eg hefi það reynt þá vil eg nú
á hann trúa og láta skírast."



Konungur svarar: "Vel talar þú Bárður eftir þinni skilningu
en það er satt atkvæði að sá guð er máttugur er mér stýrir og
öllum hlutum sýnilegum og ósýnilegum og kallar til sín þó að
með ýmissum hætti alla þá er hans þjónustu eru maklegir."



Var þá Bárður skírður og allir hans menn.



Þá mælti Bárður: "Seg þú mér kóngur hvort eg er nú góður."



Konungur kvað svo vera.



Bárður mælti: "Eg hefi þóst mér mjög einhlítur hér til og
þjónað ekki konungum eða öðrum höfðingjum en nú vil eg gerast
þér handgenginn konungur og þér fylgja meðan eg lifi. Þykir
mér það vænast að þá týni eg eigi þeim góðleik er nú hefi eg
fengið. En eg vil að þú sjáir ráð fyrir Þóru dóttur minni og
öllu hennar fé og giftir hana Þorvaldi þessum hinum íslenska
því að vér eigum honum gott að launa."



Þorvaldur svarar: "Eigi má svo vera því að eg er áður
kvongaður á Íslandi."



Konungur mælti: "Þá skaltu gefa þessa konu Sigurði vin þínum.
Þar er vel á komið með þeim er þau eru jafnstyrk."



Þorvaldur svarar: "Það vil eg gjarna gera. En það vil eg til
skilja við yður herra að þér segið Helga úr yðvarri þjónustu
og er þó ger of lítill munur þeirra Sigurðar. En eg mun þó
fyrir yðra skyld ekki gera á hluta Helga ef þér veitið mér
þetta."



Konungur sagði að svo skyldi vera. Síðan fékk Sigurður Þóru
og settist í bú á Upplöndum það er átt hafði Bárður digri.
Bárður tók sótt litlu síðar en hann var skírður og andaðist í
hvítavoðum.



En Þorvaldur fór til Íslands með mikilli sæmd af Ólafi
konungi og þótti mikilmenni og hinn vaskasti.



sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.