Óláfs saga helga (in Heimskringla) 173 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÓHHkr ch. 173)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Menn þeir er Ólafur konungur hafði sent austur á Gautland
eftir skipum sínum, þá fóru þeir með þau skip er þeim þóttu
best en hin brenndu þeir, höfðu með sér reiða og annan varnað
þann er konungur átti og menn hans. Þeir sigldu austan þá er
þeir spurðu að Knútur konungur var farinn norður í Noreg,
sigldu þá austan um Eyrarsund, svo norður til Víkurinnar á
fund Ólafs konungs, færðu honum skip sín. Var hann þá í
Túnsbergi.
En er Ólafur spurði að Knútur konungur fór liði sínu norður fyrir land þá hélt Ólafur konungur inn í Óslóarfjörð og upp í vatn það er Drafn heitir og hafðist hann þar við til þess er her Knúts konungs var farinn um suður.
En í ferð þeirri er Knútur konungur fór norðan með landi átti hann þing í hverju fylki en á hverju þingi var honum land svarið og gefnir gíslar. Fór hann austur yfir Foldina til Borgar og átti þar þing. Var honum þar land svarið sem annars staðar. Síðan fór Knútur konungur til Danmarkar suður og hafði hann Noreg eignast orustulaust. Réð hann þá fyrir þremur þjóðlöndum.
Svo segir Hallvarður Háreksblesi er hann orti um Knút konung:
Englandi ræðr yngvi
einn, hefst friðr að beinni,
böðrakkr bænar nökkva
barkrjóðr, og Danmörku,
ok hefir, odda Leiknar,
jálm-Freyr und sig málma,
hjaldrörr haukum þverrir
hungr, Noregi þrungið.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.