Óláfs saga helga (in Heimskringla) 174 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÓHHkr ch. 174)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Ólafur konungur hélt skipum sínum út til Túnsbergs þegar er
hann spurði að Knútur konungur var farinn suður til
Danmarkar. Síðan bjó hann ferð sína með lið það er honum
vildi fylgja og hafði hann þá þrettán skip. Síðan hélt hann
út eftir Víkinni og fékk hann lítið af fé og svo af mönnum
nema þeir fylgdu honum er eyjar byggðu eða útnes. Gekk
konungur þá ekki á land upp, hafði slíkt af fé eða mönnum sem
á leið hans varð. Hann fann það að landið var þá svikið undan
honum. Fór hann þá svo sem byrjaði. Var það öndurðan vetur.
Þeim byrjaði heldur seint. Lágu þeir í Sóleyjum mjög lengi og spurðu þar tíðindi af kaupmönnum norðan úr landi. Var konungi þá sagt að Erlingur Skjálgsson hafði liðsafnað mikinn á Jaðri, skeið hans lá fyrir landi albúin og fjöldi annarra skipa er bændur áttu. Voru það skútur og lagnarskip og róðrarferjur stórar.
Konungurinn hélt austan liðinu og lá um hríð í Eikundasundi.
Spurðu þá hvorir til annarra. Fjölmenntist Erlingur sem mest
þá.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.