Óláfs saga helga (in Heimskringla) 157 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÓHHkr ch. 157)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Ólafur konungur átti oft tal og stefnur við menn sína og
spurði að ráðagerðum. En er hann fann að sitt lagði hver til
þá grunaði hann að þeir voru sumir er annað mundu um mæla en
sýnast mundi ráðlegast og mundi þá eigi ráðið hvort allir
mundu honum rétta skuld gjalda um tryggðina.
Þess eggjuðu margir að þeir skyldu taka byr og sigla til Eyrarsunds og svo norður til Noregs. Sögðu þeir að Danir mundu ekki þora að þeim að leggja þótt þeir lægju fyrir með lið mikið.
En konungur var maður svo vitur að hann sá að slíkt var ófæra. Vissi hann og að annan veg hafði tekist Ólafi Tryggvasyni þá er hann var fáliður er hann lagði til orustu þar er her mikill var fyrir en Danir þyrðu þá eigi að berjast. Vissi konungur og að í her Knúts konungs var fjöldi Norðmanna. Grunaði konung að þeir er slíkt réðu honum mundu vera hollari Knúti konungi en honum.
Veitti Ólafur konungur þá úrskurð, segir svo að menn skulu
búast, þeir er honum vilja fylgja, og fara landveg um hið
efra Gautland og svo til Noregs. "En skip vor," segir hann,
"og allan þunga þann er vér megum eigi eftir oss flytja vil
eg senda austur í veldi Svíakonungs og láta þar varðveita oss
til handa."
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.