Óláfs saga helga (in Heimskringla) 107 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÓHHkr ch. 107)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Það haust voru sögð Ólafi konungi þau tíðindi innan úr
Þrándheimi að bændur hefðu þar haft veislur fjölmennar að
veturnóttum. Voru þar drykkjur miklar. Var konungi svo sagt
að þar væru minni öll signuð ásum að fornum sið. Það fylgdi
og þeirri sögn að þar væri drepið naut og hross og roðnir
stallar af blóði og framið blót og veittur sá formáli að það
skyldi vera til árbótar. Það fylgdi því að öllum mönnum þótti
það auðsýnt að goðin höfðu reiðst því er Háleygir höfðu
horfið til kristni.
En er konungur spurði þessi tíðindi þá sendi hann menn inn í Þrándheim og stefndi til sín bóndum þeim er hann réð til nefna.
Maður er nefndur Ölvir á Eggju. Hann var kenndur við bæ þann er hann bjó á. Hann var ríkur maður og ættstór. Hann var höfuðsmaður ferðar þessar af hendi bónda til konungs. Og er þeir koma á konungsfund þá bar konungur á hendur bóndum þessi kennsl.
En Ölvir svarar af hendi bónda og segir að þeir hefðu engar veislur haft það haust nema gildi sín eða hvirfingsdrykkjur en sumir vinaboð. "En það," segir hann, "er yður er sagt frá orðtökum vorum Þrændanna þá er vér drekkum þá kunnu allir vitrir menn að varast slíkar ræður en eigi kann eg að synja fyrir heimska menn og ölóða hvað þeir mæla."
Ölvir var maður málsnjallur og máldjarfur. Varði hann allar
þessar ræður við bændur. En að lyktum segir konungur að
Innþrændir mundu sér sjálfir bera vitni hvernug þeir eru
trúaðir. Fengu bændur þá leyfi til heimfarar. Fóru þeir og
þegar er þeir voru búnir.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.