Óláfs saga helga (in Heimskringla) 38 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÓHHkr ch. 38)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Þá hóf Ólafur konungur þegar ferð sína og lét bjóða upp
veislur fyrir sér þar sem konungsbú voru. Fór hann fyrst um
Haðaland og þá sótti hann norður í Guðbrandsdala. Fór þá svo
sem Sigurður sýr hafði getið að lið dreif til hans svo mart
að hann þóttist eigi hálft þurfa og hafði hann þá nær þremur
hundruðum manna. Þá entust honum ekki veislurnar sem ákveðið
var, því að það hafði verið siðvenja að konungar fóru um
Upplönd með sex tigu manna eða sjö tigu en aldrei meir en
hundrað manna. Fór konungur skjótt yfir og var eina nótt í
sama stað. En er hann kom norður til fjalls þá byrjar hann
ferð sína, kemur norður um fjallið og fór til þess er hann
kom norður af fjallinu.
Ólafur konungur kom ofan í Uppdal og dvaldist þar um nótt. Síðan fór hann Uppdalsskóg og kom fram í Meðaldal, krafði þar þings og stefndi þar til sín bóndum. Síðan talaði konungur á þinginu og krafði bændur sér viðurtöku, bauð þeim þar í móti rétt og lög svo sem boðið hafði Ólafur konungur Tryggvason.
Búendur höfðu engi styrk til þess að halda ósætt við konung
og lauk svo að þeir veittu konungi viðurtöku og bundu það
svardögum. En þó höfðu þeir áður gert njósn ofan í Orkadal og
svo í Skaun og létu segja um ferð Ólafs konungs allt það er
þeir vissu af.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.