Landnámabók 32 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Ldn ch. 32)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Björn hét son Ketils flatnefs og Yngvildar, dóttur Ketils
veðurs hersis af Hringaríki. Björn sat eftir að eignum föður
síns, þá er Ketill fór til Suðureyja. En er Ketill hélt
sköttum fyrir Haraldi konungi hinum hárfagra, þá rak konungur
Björn son hans af eignum sínum og tók undir sig. Þá fór Björn
vestur um haf og vildi þar ekki staðfestast; því var hann
kallaður Björn hinn austræni. Hann átti Gjaflaugu
Kjallaksdóttur, systur Bjarnar hins sterka.
Björn hinn austræni fór til Íslands og nam land á milli
Hraunsfjarðar og Stafár; hann bjó í Bjarnarhöfn á Borgarholti
og hafði selför upp til Selja og átti rausnarbú. Hann dó í
Bjarnarhöfn og er heygður við Borgarlæk, því að hann einn var
óskírður barna Ketils flatnefs.
Son þeirra Bjarnar og Gjaflaugar var Kjallakur hinn gamli, er
bjó í Bjarnarhöfn eftir föður sinn, og Óttar, faðir Bjarnar,
föður Vigfúss í Drápuhlíð, er Snorri goði lét drepa. Annar
son Óttars var Helgi; hann herjaði á Skotland og tók þar að
herfangi Niðbjörgu, dóttur Bjólans konungs og Kaðlínar,
dóttur Göngu-Hrólfs; hann fékk hennar; var son þeirra Ósvífur
hinn spaki og Einar skálaglamm, er drukknaði á Einarsskeri í
Selasundi, og kom skjöldur hans í Skjaldey, en feldur á
Feldarhólm. Einar var faðir Þorgerðar, móður Herdísar, móður
Steins skálds. Ósvífur átti Þórdísi, dóttur Þjóðólfs úr Höfn;
þeirra börn voru þau Óspakur, faðir Úlfs stallara og
Þórólfur. Torráður, Einar, Þorbjörn og Þorkell, þeir urðu
sekir um víg Kjartans Óláfssonar, og Guðrún, móðir Gellis og
Bolla og Þorleiks og Þórðar kattar. Vilgeir hét son Bjarnar
hins austræna.
Kjallakur hinn gamli átti Ástríði, dóttur Hrólfs hersis og
Öndóttar, systur Ölvis barnakarls; þeirra son var Þorgrímur
goði. Hann átti (Þórhildi); voru synir þeirra Víga-Styr og
Vermundur mjóvi og Brandur, faðir Þorleiks. Dætur Kjallaks
hins gamla Gerður, er Þormóður goði átti, og Helga, er Ásgeir
á Eyri átti.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.