Haraldssona saga 31 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (HSona ch. 31)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Þá er liðnir voru tveir vetur frá falli Sigurðar konungs
drógu konungar her saman, Ingi austan úr landi og fékk hann
átta tigu skipa en Eysteinn konungur norðan og fékk hálfan
fimmta tug skipa. Þá hafði hann dreka hinn mikla er Eysteinn
konungur Magnússon hafði látið gera og höfðu þeir allfrítt
lið og mikið. Ingi konungur lá skipum sínum suður við Mostur
en Eysteinn konungur litlu norðar, í Græningasundi.
Eysteinn sendi suður til Inga Áslák unga Jónsson og Árna sturlu Sæbjarnarson. Þeir höfðu eitt skip. En er Inga menn kenndu þá lögðu þeir að þeim og drápu mart manna af þeim, tóku skipið og allt það er á var og hvert fat þeirra. En Áslákur og Árni og nokkurir menn með þeim komust á land upp og fóru til fundar við Eystein konung og sögðu honum hvernug Ingi konungur hefði fagnað þeim.
Eysteinn konungur hafði þá húsþing og segir mönnum hvern ófrið þeir Ingi vildu gera og bað liðsmenn að þeir skyldu honum fylgja "og höfum vér lið svo mikið og gott að eg vil hvergi undan flýja ef þér viljið fylgja mér."
En engi varð rómur að máli hans. Hallkell húkur var þar en synir hans báðir með Inga, Símon og Jón.
Hallkell svaraði svo að mjög margir heyrðu: "Fylgi gullkistur
þínar þér nú og verji land þitt."
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.