Haraldssona saga 29 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (HSona ch. 29)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Gregoríus Dagsson fór austur litlu síðar en Eysteinn konungur
og var uppi á Höfundi á Bratsbergi að búi sínu. Eysteinn
konungur var inn í Ósló og lét draga skip sín meir en tvær
vikur sjávar að ísi því að íslög voru mikil inn í Víkinni.
Hann fór upp á Höfund og vildi taka Gregoríus en hann varð
var við og fór undan upp á Þelamörk með níu tigu manna og þar
norður um fjall og kom ofan í Harðangri og fór síðan í Eðni
til Stuðlu.
Þar átti Erlingur skakki bú en hann var farinn norður til
Björgynjar en Kristín kona hans, dóttir Sigurðar konungs, var
heima og bauð Gregoríusi slíkt er hann vildi hafa þaðan. Fékk
Gregoríus þar góðar viðtökur. Hann hafði langskip þaðan er
Erlingur átti og allt það er hann þurfti. Gregoríus þakkaði
henni vel og lét henni hafa orðið stórmannlega sem von var
að. Þeir fóru síðan til Björgynjar og fundu Erling og þótti
honum hún vel hafa gert.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.