Haralds saga Sigurðssonar 52 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (HSig ch. 52)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
En hið næsta sumar eftir hafði Haraldur konungur leiðangur
úti, fór suður til Danmerkur og herjaði þar um sumarið. En er
hann kom suður til Fjóns þá var þar liðsafnaður mikill fyrir
þeim.
Þá lét konungur lið sitt ganga af skipum og bjóst til
uppgöngu. Hann skipaði liði sínu, lét vera fyrir sveit Kálf
Árnason og bað þá ganga fyrsta upp og sagði þeim hvert þeir
skyldu stefna en hann kveðst mundu ganga upp eftir þeim og
koma þeim að liði. Þeir Kálfur gengu upp og kom brátt lið í
móti þeim. Réð Kálfur þegar til orustu og varð sá bardagi
eigi langur því að Kálfur var brátt ofurliði borinn og kom
hann á flótta og lið hans en Danir fylgdu þeim. Féll mart af
Norðmönnum. Þar féll Kálfur Árnason.
Haraldur konungur gekk upp á land með fylking sína. Var það
brátt á leið hans að þeir sáu fyrir sér valinn og fundu brátt
lík Kálfs. Var það borið ofan til skipa. En konungur gekk upp
á land og herjaði og drap þar mart manna.
Svo segir Arnór:
Rauð, en rýrt varð síðan,
rann eldr um sjöt manna,
frána egg á Fjóni,
Fjónbyggjalið, tyggi.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.