Hálfdanar saga svarta 3 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Hálfds ch. 3)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Hálfdan svarti fékk Ragnhildar dóttur Haralds gullskeggs.
Hann var konungur í Sogni. Þau áttu son er Haraldur konungur
gaf nafn sitt og fæddist sá sveinn upp í Sogni með Haraldi
konungi. En er Haraldur konungur var örvasi að aldri þá átti
hann engan son og gaf hann Haraldi dóttursyni sínum ríki sitt
og lét hann taka til konungs. Litlu síðar andaðist Haraldur
gullskeggur. Þann sama vetur andaðist Ragnhildur dóttir hans
en eftir um vorið varð sóttdauður Haraldur konungur ungi í
Sogni. Þá var hann tíu vetra gamall.
Þegar er Hálfdan svarti spurði andlát hans þá byrjar hann
ferð sína með miklu liði og fer norður til Sogns. Var þar vel
við honum tekið. Taldi hann þar til ríkis og arfs eftir son
sinn og var þar engi mótstaða. Lagði hann undir sig það ríki.
Þá kom til hans Atli jarl hinn mjóvi af Gaulum. Hann var vin
Hálfdanar konungs. Setti konungur hann yfir Sygnafylki að
dæma þar landslög og heimta skatta til handa konungi. Fór þá
konungur til Upplanda í ríki sitt.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.