Hálfdanar saga svarta 2 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Hálfds ch. 2)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Hálfdan svarti spurði að ófriður var á Raumaríki. Dró hann þá
her saman og fór á Raumaríki á hendur Eysteini konungi og
áttu þeir orustu. Hafði Hálfdan sigur en Eysteinn flýði upp á
Heiðmörk. Hálfdan konungur fór þá með her sinn á Heiðmörk
eftir honum og áttu þeir þar aðra orustu og hafði Hálfdan
sigur en Eysteinn flýði norður í Dala á fund Guðbrands
hersis. Hann efldist þaðan að liði, fór síðan út á Heiðmörk.
Hann hitti Hálfdan svarta í ey hinni miklu er liggur í Mjörs
og áttu þeir þar orustu og féll mart manna af hvorumtveggjum
og hafði Hálfdan konungur sigur. Þar féll Guttormur son
Guðbrands hersis er mannvænstur þótti vera á Upplöndum. Þá
flýði Eysteinn konungur enn norður í Dala.
Þá sendi hann Hallvarð skálk frænda sinn á fund Hálfdanar
konungs að leita um sættir en fyrir sakir frændsemi gaf
Hálfdan konungur upp Eysteini konungi hálfa Heiðmörk svo sem
þeir frændur höfðu fyrr átt. En Hálfdan konungur lagði undir
sig Þótn og þar sem Land heitir og Haðaland því að hann
herjaði víða. Var hann þá og allríkur konungur.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.