Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

Band ch. 4

Bandamanna saga 4 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (Band ch. 4)

Anonymous íslendingasögurBandamanna saga
345

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):



Svo bar til um haustið að Óspakur kom norður í
Víðidal, á Svölustaði. Þar bjó kona sú er Svala hét. Þar
var honum veittur beinleiki. Hún var væn kona og ung. Hún
talar tíl Óspaks og biður hann sjá um ráð sitt "hefi eg
það frétt að þú ert búmaður mikill."



Hann tók því vel og tala þau mart. Féllst hvort öðru
vel í geð og lítast þau vel til og blíðlega. Og þar kemur
tali þeirra að hann spyr hver ráða eigi fyrir kosti
hennar.



"Engi maður er mér skyldri," segir hún, "sá er nokkurs
er verður, en Þórarinn Langdælagoði hinn spaki."



Síðan ríður Óspakur til fundar við Þórarin og er þar
tekið við honum vel að eins. Hann hefir nú uppi sitt
erindi og biður Svölu.



Þórarinn segir: "Ekki kann eg að girnast til þíns
mægis. Er margtalað um þínar meðferðir. Kann eg það sjá
að ekki má í tveim höndum hafa við slíka menn, verður
annaðhvort að taka upp bú hennar og láta hana fara
hingað, ella munuð þið gera sem ykkur líkar. Nú mun eg
mér engu af skipta og kalla eg ekki þetta mitt ráð."



Eftir þetta fer Óspakur á brott og kemur á Svölustaði
og segir henn svo búið. Nú gera þau ráð sitt og fastnar
hún sig sjálf og fer hún með honum á Mel en þau eiga bú á
Svölustöðum og fá menn til fyrir að vera. Nú er Óspakur á
Mel og hélt rausn í búinu. Hann þótti þó vera
ódældarmaður mikill.



Nú líður af veturinn og um sumarið kom Oddur út í
Hrútafirði. Hafði honum enn orðið gott til fjár og
mannheilla, kemur heim á Mel og lítur yfir eignir sínar,
þykir vel varðveist hafa og gest vel að. Líður nú á
sumarið.



Það er eitt sinn að Oddur vekur til við Óspak að vel
muni fallið að hann tæki við goðorði sínu.



Óspakur segir: "Já," segir hann, "þar er sá hlutur er
eg var ófúsastur til með að fara og síst til fær. Er eg
þess og albúinn en það ætla eg mönnum þó tíðast að það sé
gert annaðhvort á leiðum eða þingum."



Oddur segir: "Það má vel vera."



Líður nú sumarið að leiðinni fram. Og leiðarmorguninn
er Oddur vaknar litast hann um og sér fátt manna í
skálanum. Hefur hann sofið fast og lengi, spratt upp og
veit að menn eru gersamlega úr skálanum. Honum þótti
þetta undarlegt og talar þó fátt. Hann býst um og
nokkurir menn með honum, þótti þetta undarlegt og ríða nú
til leiðarinnar. Og er þeir komu þar þá var þar mart
manna fyrir og voru þá mjög brott búnir og var helguð
leiðin. Oddi bregður nú í brún, þykir undarleg þessi
tiltekja. Fara menn heim og líða þaðan nokkurir dagar.



Það var enn einn dag er Oddur sat undir borði og
Óspakur gegnt honum og er minnst varir hleypur Oddur
undan borðinu og að Óspaki og hefir reidda exi í hendi
sér, biður hann nú laust láta goðorðið.



Óspakur segir: "Eigi muntu þurfa með svo miklu kappi
að sækja. þegar hefir þú goðorð er þú vilt og vissi eg
eigi er þér væri alvara við að taka."



Rétti hann þá fram höndina og fékk Oddi goðorðið. Var
nú kyrrt um hríð og héðan gerist fátt með þeim Oddi og
Óspaki. Er Óspakur heldur ýgur viðskiptis. Grunar menn um
að Óspakur mundi hafa ætlað sér að hafa goðorðið en eigi
Oddi ef eigi hefði verið kúgað af honum að hann mætti
eigi undan komast. Nú verður ekki af búsumsýslunni. Oddur
kveður hann að engu. Mæltust þeir og ekki við.



Það var einn dag að Óspakur býr ferð sína. Oddur lætur
sem hann viti það eigi. Skiljast þeir svo að hvorgi
kveður annan. Óspakur fer nú á Svölustaði til bús síns.
Oddur lætur nú sem ekki sé að orðið og er nú kyrrt um
hríð.



Þess er getið að um haustið fara menn á fjall og skaut
mjög í tvö horn um heimtur Odds frá því er verið hafði.
Hann skorti að haustheimtu fjóra tigu geldinga og þá alla
er bestir voru af fé hans. Er nú víða leitað um fjöll og
heiðar og finnast eigi. Undarlegt þótti þetta vera því að
Oddur þótti féauðnumaður meiri en aðrir menn. Svo mikill
atrekandi var ger um leitina að bæði var leitað til
annarra héraða og heima og gerði eigi. Og um síðir dofnar
enn yfir þessu og var þó margrætt um hverju gegna mundi.
Oddur var ekki glaður um veturinn.



Vali frændi hans frétti hann hví hann væri óglaður
"eða hvort þykir þér svo mikið geldingahvarfið? og ertu
eigi þá mikill borði ef þig hryggir slíkt."



Oddur segir: "Eigi hryggir mig geldingahvarfið en hitt
þykir mér verra er eg veit eigi hver stolið hefir."



"Þykir þér það víst," segir Vali, "að það mun af orðið
eða hvar horfir þú helst á?"



Oddur segir:"Ekki er því að leyna að eg ætla Óspak
stolið hafa."



Vali segir: "ferst nú vinátta ykkur frá því er þú
settir hann yfir allt þitt góss.



Oddur kvað það verið hafa hið mesta glapræði og vonum
betur tekist hafa.



Vali mælti: "margra manna mál var það að það væri
undarlegt. Nú vil eg að þú snúir eigi svo skjótt málinu
til áfellis honum. Er það hætt við orði að ómerkilega
þyki verða. Nú skulum við því saman kaupa," segir Vali,
"að þú skalt mig láta fyrir ráða hversu að er farið en eg
skal verða vís hins sanna."



Nú kaupa þeir þessu. Vali býr nú ferð sína og fer með
varning sinn, ríður út til Vatnsdals og Langadals og
selur varninginn. Var hann vinsæll og tillagagóður. Hann
fer nú leið sína þar til er hann kemur á Svölustaði og
fékk þar góðar viðtökur. Óspakur var allkátur. Vali bjóst
þaðan um morguninn. Óspakur leiddi hann úr garði og
frétti margs frá Oddi. Vali sagði gott af hans ráði.
Óspakur lét?vel yfir honum og kvað hann vera rausnarmann
mikinn "eða er hann fyrir sköðum orðinn í haust?"



Vali kvað það satt vera.



"Hverjar eru getur á um sauðahvarfið? Hefir Oddur
lengi fégefinn verið hér til."



Vali segir: "Eigi er það á eina leið. Sumir ætla að
vera muni af mannavöldum."



Óspakur segir: "Óætlanda er slíkt og er eigi margra
brögð."



"Svo er og," segir Vali.



Óspakur mælti: "Hefir Oddur nokkurar getur á?"



Vali mælti: "Fátalaður er hann til en þó er fjölrætt
um af öðrum mönnum hverju gegna muni."



"það er eftir vonum," segir Óspakur.



"Á þá leið er," segir Vali, "er þó höfum við þetta
talað, að það vilja sumir kalla eigi óvænt að vera muni
af þínum völdum. Draga menn það saman er þið skilduð
stuttlega en hvarfið varð eigi miklu síðar."



Óspakur segir: "Eigi varði mig að þú mundir slíkt mæla
og ef við værum eigi slíkir vinir þá mundi eg þessa
sárlega hefna."



Vali segir: "Eigi þarftu þessa að dylja eða svo óður
við að verða. Eigi mun þetta af þér bera og hefi eg séð
yfir ráð þitt og sé eg það að miklu hefir þú meiri föng
en líklegt sé að vel muni fengið."



Óspakur segir: "Eigi mun svo reynast og eigi veit eg
hvað tala fjandmenn vorir er slíkt tala vinirnir."



Vali segir: "Þetta er og ekki af fjandskap mælt af mér
við þig er þú heyrir einn á. Nú ef þú gerir svo sem eg
vil og gangir við fyrir mér þá mun þér létt falla því að
eg skal setja ráð til þess. Eg hefi seldan varning minn
víða um sveitir. Mun eg segja að þú hafir við tekið og
keypt þér með slátur og aðra hluti. Mun það engi maður
mistrúa. Skal eg svo til haga að þér verði engi ósæmd að
þessu ef þú fylgir mínu ráði að."



Óspakur sagðist eigi mundu við ganga.



"Þá mun fara verr," segir Vali, "og veldur þú
sjálfur."



Síðan skiljast þeir og fer Vali heim. Oddur spyr hvers
hann hefði vís orðið um sauðahvarfið. Vali lét sér fátt
um finnast.



Oddur mælti: "Nú þarf eigi við að dyljast að Óspakur
hefir stolið því að þú mundir hann gjarna undan bera ef
þú mættir."



Er nú kyrrt um veturinn. Og er voraði og stefnudagar
komu þá fer Oddur með tuttugu menn þar til er hann kom
mjög að garði á Svölustöðum."



Þá mælti Vali við Odd: "Nú skuluð þér láta taka niður
hesta yðra en eg mun ríða til húss og hitta Óspak og vita
að hann vilji sættast og þurfi málið eigi fram að hafa."



Nú gera þeir svo. Vali ríður heim. Ekki var manna úti.
Opnar voru dyr. Gengur Vali inn. Myrkt var í húsum. Og er
minnst varir hleypur maður úr setinu og höggur milli
herða Vala svo að hann féll þegar.



Vali mælti: "Forða þér vesall maður því að Oddur er
skammt frá garði og ætlar að drepa þig. Send konu þína á
fund Odds og segi hún að við séum sáttir og hafir þú
gengið við málinu en eg sé farinn að fjárreiðum mínum út
í dali."



Þá mælti Óspakur: "Þetta er hið versta verk orðið.
Hafði eg Oddi þetta ætlað en eigi þér."



Svala hittir nú Odd og segir þá sátta Óspak og Vala
"og bað Vali þig aftur hverfa."



Oddur trúir þessu og ríður heim. Vali lét líf sitt og
var flutt lík hans á Mel. Oddi þóttu þetta mikil tíðindi
og ill. Fær hann af þessu óvirðing og þótti slyslega
tekist hafa.



Nú hverfur Óspakur á brott svo að eigi vita menn hvað
af honum verður.

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.