Ynglinga saga 40 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Yng ch. 40)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Ívar hinn víðfaðmi kom á Skáni eftir fall Guðröðar
föðurbróður síns og dró þegar her mikinn saman, fór síðan upp
á Svíþjóð. Ása hin illráða var áður farin á fund föður síns.
Ingjaldur konungur var þá staddur á Ræningi að veislu er hann
spurði að her Ívars konungs var þar nær kominn. Þóttist
Ingjaldur engan styrk hafa til að berjast við Ívar. Honum
þótti og sá sýnn kostur, ef hann legðist á flótta, að
hvaðanæva mundu fjandmenn hans að drífa. Tóku þau Ása það ráð
er frægt er orðið að þau gerðu fólk allt dauðadrukkið. Síðan
létu þau leggja eld í höllina. Brann þar höllin og allt fólk
það er inni var með Ingjaldi konungi.
Svo segir Þjóðólfur:
Og Ingjald
ífjörvan trað
reyks rösuðr
á Ræningi
þá er húsþjófr
hyrjar leistum
goðkynning
í gegnum steig.
Og sá urðr
allri þjóðu
sjaldgætastr
með Svíum þótti,
er hann sjálfr
sínu fjörvi
fræknu fyrstr
um fara vildi.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.