Ynglinga saga 1 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Yng ch. 1)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Kringla heimsins, sú er mannfólkið byggir, er mjög vogskorin.
Ganga höf stór úr útsjánum inn í jörðina. Er það kunnigt að
haf gengur frá Nörvasundum og allt út til Jórsalalands. Af
hafinu gengur langur hafsbotn til landnorðurs er heitir
Svartahaf. Sá skilur heimsþriðjungana. Heitir fyrir austan
Asía en fyrir vestan kalla sumir Evrópu en sumir Eneu. En
norðan að Svartahafi gengur Svíþjóð hin mikla eða hin kalda.
Svíþjóð hina miklu kalla sumir menn eigi minni en Serkland
hið mikla, sumir jafna henni við Bláland hið mikla. Hinn
nyrðri hlutur Svíþjóðar liggur óbyggður af frosti og kulda,
svo sem hinn syðri hlutur Blálands er auður af sólarbruna. Í
Svíþjóð eru stórhéruð mörg. Þar eru og margs konar þjóðir og
margar tungur. Þar eru risar og þar eru dvergar, þar eru
blámenn og þar eru margs konar undarlegar þjóðir. Þar eru og
dýr og drekar furðulega stórir. Úr norðri frá fjöllum þeim er
fyrir utan eru byggð alla fellur á um Svíþjóð, sú er að réttu
heitir Tanaís. Hún var forðum kölluð Tanakvísl eða Vanakvísl.
Hún kemur til sjávar inn í Svartahaf. Í Vanakvíslum var þá
kallað Vanaland eða Vanaheimur. Sú á skilur heimsþriðjungana.
Heitir fyrir austan Asía en fyrir vestan Evrópa.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.