Sturlunga saga 5 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Stu ch. 5)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Gissur Þorvaldsson var þessar stundir í Noregi með Hákoni konungi frænda sínum. Hann fór til Hallands með konunginum þá er það var brennt og báðir þeir Þórður Sighvatsson. Áttust þeir þá ekki við. Hafði hvortveggi þeirra góð metorð af konunginum. Það haust andaðist Þórður Sighvatsson sem fyrr er ritið. Hafði Gissur síðan meiri metorð eftir en áður af Hákoni konungi. Og það sumar er nú var frá sagt gaf Hákon konungur Gissuri jarlsnafn og skipaði honum allan Sunnlendingafjórðung og Norðlendingafjórðung og allan Borgarfjörð. Hákon konungur gaf Gissuri jarli stórgjafir áður hann fór út um sumarið. Hákon konungur fékk Gissuri jarli merki og lúður og setti hann í hásæti hjá sér og lét skutilsveina sína skenkja honum sem sjálfum sér. Gissur jarl var mjög heitbundinn við Hákon konung að skattur skyldi við gangast á Íslandi. Í Björgvin var Gissuri jarlsnafn gefið á einu ári hins fimmta tugar konungdóms Hákonar. Þá skorti Gissur jarl vetur á fimmtugan. En þá skorti hann vetur á fertugan er hann gekk suður, vetur á þrítugan er Örlygsstaðafundur var, vetur á tvítugan er hann gerðist skutilsveinn.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.