Þorgils saga skarða 71 — ed. Guðrún Nordal
Not published: do not cite (Þorg ch. 71)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Eyjólfur Þorsteinsson stóð í miðri fylkingu þeirra Hrafns öndverðan bardagann og barðist vel og drengilega og gekk þar eigi lengi á er hann var fyrir. Stóð hann fast og þeir sem honum fylgdu. Eyjólfur hafði fengið steinshögg framan á brjóstið í bardaganum og varð honum við það heldur erfitt. Voru hans aðgerðir þaðan af minni en ellegar mundi. Gekk þá bardaginn sem snarpast um hríð. Sóttu menn þá fast að Eyjólfi. Angraði hann þá mæði. Var það mjög jafnsnemma að þá brast flóttinn í liði þeirra Hrafns og Eyjólfs. Vildi hann þá leita til hests síns. En er hann tók stigreipið og ætlaði á bak hljóp í því að honum Jörundur gestur og þreif um hálsinn og hnekkti á bak aftur og felldi hann og fór á hann ofan og rak af honum stálhúfuna. Kom þá að Þorvarður og menn hans og spurði hvern hann hefði þar undir. Jörundur svarar: Eg kenni hann fullgjörla að hér er Eyjólfur Þorsteinsson. Gekk Þorvarður þá að og tók spjótið tveim höndum og lagði til Eyjólfs. Kom það lag í munninn og niður gegnum hnakkann við vellinum. Sá maður hjó í höfuð Eyjólfi er Kimbi hét, með breiðöxi, og greinast menn að hvor fyrri áverki varð. Kimbi var síðan drepinn og segja menn að það væri af ráðum Hrafns fullkomlega.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.