Þorgils saga skarða 27 — ed. Guðrún Nordal
Not published: do not cite (Þorg ch. 27)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Það var einn dag er Þorgils reið til Lýsuhvolslaugar að skemmta sér og fylgdarmenn hans með honum. Þar bjó Vestar Torfason. Jóreiður var kona hans. Hún var væn. Þeir Þorgils stigu af baki við sundlaug. Jóreiður var þar fyrir og þó klæði. Þorgils tók í hönd henni og glensaði við hana. Þetta sér Vestar og hljóp heiman og til vopna þeirra og tekur eitt sverð og bregður og hleypur upp að lauginni. Og er fylgdarmenn sjá það hlaupa þeir upp og taka Vestar og vilja hrekja hann og tóku af honum sverðið. En er Þorgils sá þetta hleypur hann til og biður þá eigi hrekja hann því að hann er maður að vaskari þótt hann vildi hefna svívirðu sinnar er hann hugði honum væri ger þótt hér væru eigi þau efni í. En legg ekki hug á það Vestar að eg vilji nokkura þá hluti eiga við konu þína að hún sé þá verri kona en áður. En fyrir raun þína vaska vil eg gefa þér öxi þessa. Og skildu þeir að því.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.