Þórðar saga kakala 44 — ed. Guðrún Nordal
Not published: do not cite (ÞKak ch. 44)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
En þegar Gissur spurði þessi tíðindi dró hann lið saman og fór norður um land. Hann hafði nær fjögur hundruð manna. Hann kom í Skagafjörð og þá heimboð með fimmtánda mann að Jórunni Kálfsdóttur að Stað og hét henni og sonum hennar liðveislu sinni traustri og vináttu. Jórunn gaf honum gjafir góðar. Skagfirðingar sóttu þá á fund Gissurar og játuðu honum sínum trúnaði. Njósnir gengu þá til Þórðar og safnaði hann þá þegar mönnum og fékk þá enn mikið lið. En menn hans voru áður mjög hremmdir og var eigi jafnléttvígt sem um vorið fyrir fundinn. Eftir það tókust meðalferðir og fóru þeir á milli Þórir tottur Arnþórsson, hann hafði skip á Eyrum og var með Gissuri. Margir menn fóru aðrir á milli og varð saman komið sættum með því að Hákon konungur skyldi gera með þeim við þá menn sem hann vildi við hafa. Skyldu þeir fara utan um sumarið báðir, Þórður og Gissur. Sóru tólf menn sátt þessa úr hvorutveggja ríkinu og að halda þessa sætt en þeir fundust ekki sjálfir Gissur og Þórður. Eftir sættina fór Gissur suður.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.