Íslendinga saga 156 — ed. Guðrún Nordal
Not published: do not cite (Ísls ch. 156)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Gissur kom í Reykjaholt um nóttina eftir Máritíusmessu. Brutu þeir upp skemmuna er Snorri svaf í. En hann hljóp upp og úr skemmunni og í hin litlu húsin er voru við skemmuna. Fann hann þar Arnbjörn prest og talaði við hann. Réðu þeir það að Snorri gekk í kjallarann er var undir loftinu þar í húsunum. Þeir Gissur fóru að leita Snorra um húsin. Þá fann Gissur Arnbjörn prest og spurði hvar Snorri væri. Hann kvaðst eigi vita. Gissur kvað þá eigi sættast mega ef þeir fyndust eigi. Prestur kvað vera mega að hann fyndist ef honum væri griðum heitið. Eftir það urðu þeir varir við hvar Snorri var og gengu þeir í kjallarann Markús Marðarson, Símon knútur, Árni beiskur, Þorsteinn Guðinason, Þórarinn Ásgrímsson. Símon knútur bað Árna höggva hann. Eigi skal höggva, sagði Snorri. Högg þú, sagði Símon. Eigi skal höggva, sagði Snorri. Eftir það veitti Árni honum banasár og báðir þeir Þorsteinn unnu á honum.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.