Íslendinga saga 105 — ed. Guðrún Nordal
Not published: do not cite (Ísls ch. 105)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Kolbeinn reið heim af þingi og lauk Magnús biskup öngum gerðum upp með þeim Sighvati því að Sighvatur kom ekki til þings. En hann gerði fyrir víg Kálfs Guttormssonar og Guttorms sonar hans tíu tigi hundraða og greiddi Kolbeinn það allt vel eftir skildögum. Vinir Kolbeins fýstu hann mjög að sættast við Sighvat og fóru þá enn menn í milli þeirra og kom svo að fundur var lagiður með þeim í Hörgárdal. En er þeir komu til fundarins og menn leituðu um sættir kom því svo að annar hvor þeirra skyldi einn gera og hluta um og kasta til teningum. En er þeir hlutuðu fyrirkast kastaði Sighvatur daus og ás. Þá mælti einn af fylgdarmönnum Kolbeins: Smátt féll nú úr hendi Sighvati bónda. En í síðurum köstum kastaði stærra Sighvatur og hlaut hann að gera og lauk hann ekki gerð upp á þeim fundi. En það var þá ráðið að Kolbeinn Arnórsson og Kolbeinn Sighvatsson skyldu ríða suður um land og hafa á öðru hundraði manna og setjast í bú Snorra Sturlusonar þau er hann átti suður þar í Dal undir Eyjafjöllum og á Leirubakka og enn fleiri. Þeir sátu mjög lengi um sumarið á Leirubakka og gerðu þeir þar margar óspektir og rændu víða.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.