Íslendinga saga 96 — ed. Guðrún Nordal
Not published: do not cite (Ísls ch. 96)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Oddur Álason var með Sturlu um sumarið og var það orð á að hann mundi utan fara. En þá er Sturla spurði að menn drógust að Órækju í Vatnsfirði setti hann Odd eftir að gæta þingmanna sinna í Vestfjörðum. Fór hann þá vestur og fundust þeir Órækja og lagðist allvel á með þeim. Mæltu þeir til vináttu með sér. Þórdís fór og vestur í fjörðu. Og er hún kom í Saurbæ fæddi hún þar barn á Staðarhóli. Það var mær er þau Oddur áttu. Hún lá þar þrjár nætur og fór síðan vestur og heim á Mýrar. Sá maður kom til Órækju um sumarið er Björn hét, norðlenskur maður. Hann var kallaður Maga-Björn. Hann hafði verið í Grímsey og barist þar við heimamenn Sighvats og frændur hans, Páll og Magnús Magnússynir. Með Birni var sá maður er Einar kollur hét, sunnlenskur að ætt. En er þeir koma í Vatnsfjörð gerðist Björn þar fyrirmaður um aðdráttu. Var hann allóspakur og ekki heimildavandur að föngum bónda.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.