Íslendinga saga 83 — ed. Guðrún Nordal
Not published: do not cite (Ísls ch. 83)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Um vorið bjóst Sturla að fara í fjörðu vestur. Skyldi hann þá lúka upp gerðum eftir því sem mælt var með þeim Vatnsfirðingum. Þeir höfðu lagt fund á Skálanesi. Reið Sturla til Saurbæjar og tók þar skip. Fór Sturla vestur til Skálaness með tuttugu og fimm manna. Þar koma þeir bræður með hálfan fjórða tug manna. Svertingur Þorleifsson var þar fyrir með tíu menn. Hann kom saman fundi þeirra því að Sturla þótti þeir gnógu fjölmennir. Gekk Sturla í sker eitt og Torfi prestur. Þeir bræður gengu og þangað og töluðu skamma stund og færðu fundinn í Önundarfjörð í Holt, skyldu þar koma með þrjá tigu manna hvorir. Fóru Vatnsfirðingar vestur yfir heiði en Sturla fór þar til er hann kom til Sanda í Dýrafirði. Þar bjó þá Oddur Álason. Böðvar af Stað kom til móts við Sturlu og bauð að fara með honum til fundarins. Þar kom og Gísli af Sandi. Á Mýrum var Gísli eftir og allir Dýrfirðingar. Steinþór prestur úr Holti fann Sturlu að Arnkelsbrekku og bauð honum til sín. Reið Sturla í Holt.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.