Íslendinga saga 63 — ed. Guðrún Nordal
Not published: do not cite (Ísls ch. 63)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Kolbeinn Arnórsson er síðan var kallaður Kolbeinn ungi kom út í Hvítá sem fyrr var ritað. Fór hann um haustið norður til Eyjafjarðar og var um veturinn með Sighvati mági sínum á Grund. En um vorið fór Sighvatur til Skagafjarðar og leita við þingmenn hans að þeir gerðu honum bú og vikust menn og vel undir það. Var honum gert bú í Ási í Hegranesi og gerðist hann skjótt ofsamaður mikill og vænn til höfðingja. Sighvatur réð mestu með honum meðan hann var ungur. Sumar þetta var illt og votviðrasamt. Kom upp eldur úr sjónum fyrir Reykjanesi. Þá kom skip í Hrútafjörð. Var þar á Guðmundur biskup og fór heim til stóls síns. Þeir frændur Þórður og Sturla fundust við skip og fór þá skipulega með þeim, átu og drukku báðir samt. Tók sinn Austmann hvor þeirra. Fór í Hvamm Bárður garðabrjótur son Þorsteins kúgaðs en Bárður trébót fór til Sturlu.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.