Íslendinga saga 59 — ed. Guðrún Nordal
Not published: do not cite (Ísls ch. 59)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Síðar um haustið sótti Þorvaldur Snorrason brúðlaup sitt í Stafaholt og var sú veisla hin veglegsta. Fór Þorvaldur heim til Vatnsfjarðar og fann ekki Sturlu vin sinn í þessi ferð. En nær veturnóttum fór Þorvaldur út á Eyri í Arnarfjörð en Hrafnssynir stukku undan fyrst í Mosdal og voru þar á laun í skógum. En Þorvaldur tók upp búið á Eyri en leggur gjöld á alla þingmenn þeirra og kastaði sinni eign á marga þingmenn Hrafnssona. En er Hrafnssynir frétta þetta fóru þeir suður yfir Breiðafjörð fyrst á Eyri til Þórðar Sturlusonar og réð hann þeim að fara til Helgafells á fund Halls ábóta er verið hafði mágur þeirra. Var Sveinbjörn þar um veturinn en Einar var á Eyri með Guðrúnu föðursystur þeirra en Grímur og Krákur í Flatey.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.