Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

Ísls ch. 55

Íslendinga saga 55 — ed. Guðrún Nordal

Not published: do not cite (Ísls ch. 55)

Anonymous SturlungaÍslendinga saga
545556

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):

Um vorið eftir páska kom Sighvatur norðan í Dali og Halldóra kona hans. Hann reið suður yfir heiðar og þeir níu, Sturla son hans og Brandur Jónsson. Sighvatur kom í Hruna. Var þar Keldna-Valgerður og Solveig dóttir hennar. Var þá talað bónorð Sturlu og laukst með því að Þorvaldur Gissurarson hafði inni brúðlaup þeirra Solveigar. Þess er getið við að þann dag er að brúðlaupinu var setið að Þorvaldur kallaði fram fyrir þá Sighvat börn sín, fyrst börn þeirra Jóru biskupsdóttur, og sagði að honum þótti miklu máli skipta að Sighvati litist vel á börnin. Sighvatur horfði á þau um hríð og sagði að færri mundu mannlegri. Þá gengu Þóru börn fram og stóð Gissur fyrir þeim frammi og hélt Þorvaldur í hendur honum og mælti: Hér er nú ástin mín, Sighvatur bóndi, og það þætti mér allmiklu máli skipta að þér litist giftusamlega á þenna mann. Sighvatur var um fár og horfði á hann langa stund en Gissur stóð kyrr og horfði einarðlega á móti Sighvati. Sighvatur tók þá til orða og heldur stutt: Ekki er mér um ygglibrún þá. Og er Sighvatur tók þannig þessu máli hvarf Þorvaldur af þessu tali. Veislan fór allvel fram og var veitt með miklum kostnaði og skildu þeir allir með blíðu. Þær mæðgur fóru vestur með Sturlu. Það er sagt að Þorvaldur reið á leið með þeim við nokkura menn. Og áður þeir Sighvatur skildu stigu þeir af baki. Ræddu þeir þá margt um vináttu sína. Þá mælti Sighvatur: Þess vil eg biðja þig Þorvaldur að við gætum svo til með sonum okkrum að þeir héldu vel vináttu með frændsemi. Þorvaldur leit niður fyrir sig og heldur áhyggjusamlega og mælti: Gætt mun meðan við lifum báðir. Þetta virðist mönnum hin mesta spásaga að því sem síðar varð því að Þorvaldur var sálaður þá er Apavatnsför var. Eftir þetta fór Þorvaldur heim. En er Solveig kom til Sauðafells tók hún þar við búi. En Halldóra lét fylgja Vigdísi Gilsdóttur til Miðfjarðar er áður hafði verið frilla Sturlu. Þuríður hét dóttir þeirra. Sighvatur fór heim norður. Fár varð Snorri um er hann frétti kvonfang Sturlu og þótti mönnum sem hann hefði til annars ætlað. Sturla fór vestur til Saurbæjar fyrir þing og kom þar til móts við hann Þorvaldur Vatnsfirðingur. Var við tal þeirra Snorri prestur Narfason og Torfi prestur Guðmundarson. Lögðu þeir saman vináttu sína. Hét Þorvaldur því að hann skyldi veita Sturlu við hvern sem hann ætti málum að skipta á Íslandi og skiljast aldrei við hann en Sturla hét í mót að veita Þorvaldi og setjast fyrir mál þau er Snorri og frændur hans höfðu á Þorvaldi. Festu þeir þetta með því að Sturla lét Torfa prest ríða með goðorð sitt og beggja þeirra til þings og sýndu í því samband sitt.

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.