Vatnsdœla saga 1 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Vatn ch. 1)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Maður er nefndur Ketill og var kallaður raumur. Hann var
ríkur maður. Hann bjó á þeim bæ er í Raumsdal heitir. Það er
norðarlega í Noregi. Hann var son Orms skeljamola
Hrossbjarnarsonar, Jötun-Bjarnarsonar norðan úr Noregi. Þá
voru fylkiskonungar í Noregi er þessi saga gerðist. Ketill
var ágætur maður og vel auðigur að fé, rammur að afli og hinn
röskvasti í öllum mannraunum og hafði verið í hernaði hinn
fyrra hlut ævi sinnar en settist nú að búm sínum sem aldur
færðist yfir hann. Hann átti Mjöll dóttur Ánar bogsveigis.
Ketill átti son með henni. Hann er Þorsteinn nefndur. Hann
var vænn maður sjónum. Engi var hann ágætismaður á vöxt eða
afl. Hann var átján vetra þá er þetta var tíðinda en þó var
athæfi Þorsteins og allur færleikur með hinu betra meðallagi
að því sem þá voru ungir menn.
Í þenna tíma þóttust menn þess verða varir að úthlaupsmenn
eða illvirkjar mundu vera á leið þeirri er liggur á milli
Jamtalands og Raumsdals því að engir komu aftur þeir er fóru
og þótt saman væru fimmtán eða tuttugu þá höfðu þó engir
aftur komið og þóttust menn því vita að frágerðamaður mundi
úti liggja. Menn Ketils bónda urðu minnst fyrir þessum
ófriði, bæði manndrápum og fésköðum, og gerðu menn mikið orð
á til ámælis að sá væri mikill vanskörungur er yfirmaður var
þess héraðs að engar aðgerðir skyldu í mót koma slíkum óhæfum
og kváðu Ketil nú mjög eldast en hann gaf sér fátt um en
þótti þó eftir því sem þeir sögðu.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.