Þorsteins saga hvíta 2 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÞHvít ch. 2)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Maður hét Þórir. Hann var sonur Atla er bjó í Atlavík fyrir
austan vatn. Þar eru nú sauðhús. Þórir var kvongaður. Kona
hans hét Ásvör og var dóttir Brynjólfs hins gamla. Þau Þórir
áttu tvö börn. Hét sonur þeirra Einar en Ásvör dóttir. Einar
var vasklegur og eigi stór maður, hávaðamaður mikill og í
meðallagi vinsæll. Ásvör var kvenna vænst og vinsælust.
Það gerðist til tíðinda á hag Þorsteins hvíta að hann tók
augnaverk svo mikinn að þar fyrir missti hann sjónina, þykist
vanfær til umsýslu, ræðir nú um við Þorgils, biður hann taka
við liðinu. Þorgils sagði það skylt að hann veitti slíkt
fulltingi er hann má. Faðir hans ræðir við hann að hann fái
sér kvonfang og biðji Ásvarar Þórisdóttur. Og það varð og fór
hún með honum til búsins og tókust með þeim ástir góðar og
áttu tvö börn. Sonur þeirra hét Helgi en dóttir Guðrún.
Þorgils var þá vel tuttugu vetra.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.