Þorvalds þáttr víðfǫrla 1 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÞorvV ch. 1)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Maður er nefndur Eilífur örn. Við hann er kennt eitt hið
hæsta fjall á Reykjaströnd í Skagafirði. Eilífur örn var son
Atla Skíðasonar hins gamla, Bárðarsonar jarls. Eilífur örn
átti Þorlaugu dóttur Sæmundar hins suðureyska er nam
Sæmundarhlíð. Þau áttu þrjá sonu. Hét einn Sölmundur, faðir
Guðmundar, föður Víga-Barða og bræðra hans. Annar var Atli
hinn rammi. Hann átti Herdísi dóttur Þórðar frá Höfða. Þeirra
dóttir var Þorlaug er átti Guðmundur hinn ríki á Möðruvöllum.
Þriðji son Eilífs arnar hét Koðrán er bjó að Giljá í
Vatnsdal. Hann var auðigur maður. Kona hans hét Járngerður.
Son þeirra hét Ormur en annar Þorvaldur. Koðrán unni mikið
Ormi syni sínum en Þorvaldi lítið eða ekki. Var honum haldið
til vinnu þegar hann mátti sér nokkuð. Hann var klæddur lítt
og ger í hvívetna hornungur bróður síns. Hann þjónaði í húsi
föður síns það er hann var til skipaður með öllum góðvilja.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.