Þorsteins þáttr Síðu-Hallssonar 1 — ed. not skaldic
Not published: do not cite ( ch. 1)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Svo er sagt að eitt sinni er Þorsteinn Hallsson kom úr
kaupferð af Dyflinni og var það ekki að konungs vilja né
leyfi er hann hafði farið. Svo og höfðu þeir eigi goldið
landaura er gjaldkerinn átti að heimta og heimt hafði hann en
Þorsteinn lést eigi skyldur að gjalda er hann var konungs
hirðmaður og þóttist heimilt eiga og um þá fimmtán menn er
honum fylgdu að gefa upp gjaldið og varð fyrir því eigi fast
eftir gengið. Hann fór út um sumarið og til bús síns.
Konungur spyr þetta allt og lést veitt mundu hafa Þorsteini
sjálfum landaura en eigi mönnum hans, kveðst og ekki muna að
hann hefði því heitið en kvað sér hitt þykja þó meira vert er
hann tók Dyflinnarferð á sig svo að hann hafði ekki konungs
leyfi til og gerir nú Magnús konungur Þorstein fyrir þetta
útlagan og lést svo skulu leiða öðrum lagabrotið þó að mikils
séu verðir.
Og annað sumar kom Þorsteinn utan og hefir stóðhross ágæta
góð, komu norður í Þrándheim og styggðust menn nú við
Þorstein fyr sakir ummæla konungs. Sat hann jafnan einn í
herbergi með sínum mönnum. Stóðhrossin voru í haga fyr ofan
bæinn á Íluvöllum. Fór Þorsteinn þangað til að sjá.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.