Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

Nj ch. 142

Njáls saga 142 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (Nj ch. 142)

Anonymous íslendingasögurNjáls saga
141142143

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):


Nú líður þar til er dómar skulu út fara. Bjuggu þeir sig þá til
hvorirtveggju og vopnuðust. Þeir gerðu hvorirtveggju herkuml
á hjálmum sínum.



Þórhallur Ásgrímsson mælti: "Farið þér nú faðir minn að engu
allæstir og gerið nú allt sem réttast. En ef nokkuð vandast í
fyrir yður látið mig vita sem skjótast og skal eg þá gefa ráð
til með yður."



Þeir Ásgrímur litu til hans og var andlit hans sem í blóð
sæi en stórt hagl hraut úr augum honum. Hann bað færa sér
spjót sitt. Það hafði Skarphéðinn gefið honum og var hin
mesta gersemi.



Ásgrímur mælti er þeir gengu í braut: "Eigi var Þórhalli
frænda gott í hug er hann var eftir í búðinni og eigi veit eg
hvað hann tekur til. Nú skulum vér ganga til með Merði
Valgarðssyni," sagði Ásgrímur, "og láta fyrst sem ekki sé
annað því að meiri er veiður í Flosa en í mörgum öðrum."



Ásgrímur sendi þá mann til Gissurar hvíta og Hjalta
Skeggjasonar og Guðmundar ríka. Þeir komu nú allir saman og
gengu þegar til Austfirðingadóms. Þeir gengu sunnan að
dóminum. Þeir Flosi og allir Austfirðingar með honum gengu
norðan að dóminum. Þar voru og Reykdalir og Öxfirðingar og
Ljósvetningar með Flosa. Þar var og Eyjólfur Bölverksson.



Flosi laut að Eyjólfi og mælti: "Hér fer vænt að og kann vera
að eigi fari fjarri því sem þú gast til."



"Lát þú hljótt yfir því," segir Eyjólfur. "Koma mun þar er
vér munum þurfa þess að neyta."



Mörður Valgarðsson nefndi sér votta og bauð til hlutfalla
öllum þeim mönnum er skóggangssakar áttu að sækja í dóminn,
hver sína sök skyldi fyrstur fram segja eða hver þar næst eða
hver síðast. Bauð hann lögboði að dómi svo að dómendur
heyrðu. Þá voru hlutaðar framsögur og hlaut hann fyrst fram
að segja sína sök.



Mörður Valgarðsson nefndi sér votta í annað sinn. "Nefni eg
í það vætti," sagði hann, "að eg tek miskviðu alla úr máli
mínu hvort sem mér verður ofmælt eða vanmælt. Vil eg eiga
rétting allra orða minna uns eg kem máli mínu til réttra laga.
Nefni eg mér þessa votta eða þeim öðrum er neyta eða njóta
þurfa þessa vættis."



Mörður Valgarðsson nefndi sér votta. "Nefni eg í það vætti,"
sagði hann, "að eg býð Flosa Þórðarsyni eða þeim manni öðrum
en handselda lögvörn hefir fyrir hann að hlýða til eiðspjalls
míns og til framsögu sakar minnar og til sóknargagna þeirra
allra er eg hygg fram að færa á hendur honum. Býð eg lögboði
að dómi svo að dómendur heyra um dóm þveran."



Mörður Valgarðsson mælti: "Nefni eg í það vætti," sagði hann,
"að eg vinn eið að bók, lögeið, og segi eg það guði að eg
skal svo sök þessa sækja sem eg veit sannast og réttast og
helst að lögum og öll lögmæt skil af hendi inna meðan eg er
að þessu máli."



Síðan kvað hann svo að orði: "Þórodd nefndi eg í vætti, annan
Þorbjörn nefndi eg í það vætti að eg lýsti lögmætu frumhlaupi
á hönd Flosa Þórðarsyni á þeim vettvangi er Flosi Þórðarson
hljóp lögmætu frumhlaupi til Helga Njálssonar þá er Flosi
Þórðarson særði Helga Njálsson holundarsári eða heilundar eða
mergundar því er að ben gerðist en Helgi fékk bana af. Taldi
eg hann eiga að verða um sök þá mann sekan, skógarmann
óalanda, óferjanda, óráðanda öllum bjargráðum. Taldi eg sekt
fé hans allt, hálft mér en hálft fjórðungsmönnum þeim er
sektarfé eiga að taka eftir hann að lögum. Lýsti eg til
fjórðungsdóms þess sem sökin á í að koma að lögum. Lýsti eg
löglýsing. Lýst eg í heyranda hljóði að Lögbergi. Lýsti eg nú
til sóknar í sumar og til sektar fullrar á hönd Flosa
Þórðarsyni. Lýsti eg handseldri sök Þorgeirs Þórissonar.
Hafði eg þau orð öll í lýsingu minni sem nú hafði eg í
framsögu sakar minnar. Segi eg svo skapaða skóggangssök þessa
fram í Austfirðingadóm yfir höfði Jóni sem eg kvað að þá er
eg lýsti."



Mörður mælti: "Þórodd nefndi eg í vætti, annan
Þorbjörn nefndi eg í það vætti að eg lýsti sök
á hönd Flosa Þórðarsyni um það er hann særði Helga Njálsson
holundarsári eða heilundar eða mergundar því sári er að ben
gerðist en Helgi fékk bana af á þeim vettvangi er Flosi
Þórðarson hljóp til Helga Njálssonar áður lögmætu frumhlaupi.
Taldi eg hann eiga að verða um sök þá mann sekan, skógarmann
óalanda, óferjanda, óráðanda öllum bjargráðum. Taldi eg sekt
fé hans allt, hálft mér en hálft fjórðungsmönnum þeim er
sektarfé eiga að taka eftir hann að lögum. Lýsti eg til
fjórðungsdóms þess er sökin á í að koma að lögum. Lýsti eg
löglýsing. Lýst eg í heyranda hljóði að Lögbergi. Lýsti eg nú
til sóknar í sumar og til sektar fullrar á hönd Flosa
Þórðarsyni. Lýsti eg handseldri sök Þorgeirs Þórissonar.
Hafði eg þau orð öll í lýsingu minni sem nú hefi eg í
framsögu sakar minnar. Segi eg svo skapaða skóggangssök þessa
fram í Austfirðingadóm yfir höfði Jóni sem eg kvað að þá er
eg lýsti."



Lýsingarvottar Marðar gengu þá að dómi og kváðu svo að orði
að annar taldi vætti fram en báðir guldu samkvæði "að Mörður
nefndi sér Þórodd í vætti en annan mig en eg heiti Þorbjörn"
- síðan nefndi hann föður sinn - "Mörður nefndi okkur í það
vætti að hann lýsti lögmætu frumhlaupi á hönd Flosa
Þórðarsyni er hann hljóp til Helga Njálssonar á þeim
vettvangi er Flosi Þórðarson veitti Helga Njálsson holundarsár
eða heilundar eða mergundar það er að ben gerðist en
Helgi fékk bana af. Taldi hann Flosa eiga að verða um sök
þá mann sekan, skógarmann óalanda, óferjanda, óráðanda öllum
bjargráðum. Taldi hann sekt fé hans allt, hálft sér en
hálft fjórðungsmönnum þeim er sektarfé eiga að taka eftir
hann að lögum. Lýsti hann til fjórðungsdóms þess er sökin
átti í að koma að lögum. Lýsti hann löglýsing. Lýst hann í heyranda
hljóði að Lögbergi. Lýsti hann nú til sóknar í sumar og til sektar
fullrar á hönd Flosa Þórðarsyni. Lýsti hann handseldri sök Þorgeirs
Þórissonar. Hafði hann þau orð öll í lýsingu sinni sem hann hafði í
framsögu sakar sinnar og við höfum í vættisburð okkrum. Höfum við
nú rétt borið vætti okkart og verðum báðir á eitt sáttir. Berum
við svo skapað lýsingarvætti þetta fram í Austfirðingadóm yfir
höfði Jóni sem Mörður kvað að þá er hann lýsti."



Í annað sinn sögðu þeir fram í dóm lýsingarvætti og höfðu sár
fyrr en frumhlaup síðar og höfðu öll orð önnur hin sömu sem
fyrr og báru svo skapað lýsingarvætti þetta fram í
Austfirðingadóm sem Mörður kvað að þá er hann lýsti.



Sakartökuvottar Marðar gengu þá að dómi og taldi annar vætti
fram en báðir guldu samkvæði og kváðu svo að orði að þeir
Mörður Valgarðsson og Þorgeir Þórisson nefndu þá í það vætti
að Þorgeir Þórisson seldi vígsök í hendur
Merði Valgarðssyni á hendur Flosa Þórðarsyni um víg Helga
Njálssonar "seldi hann honum sök þá með sóknargögnum öllum
þeim er sökinni áttu að fylgja. Seldi hann honum að sækja og
að sættast á og svo allra gagna að njóta sem hann væri
réttur aðili. Seldi Þorgeir með lögum en Mörður tók með
lögum."



Báru þeir svo skapað sakartökuvætti þetta fram í
Austfirðingadóm yfir höfði Jóni sem þeir Þorgeir og Mörður
nefndu þá votta að. Alla votta létu þeir eiða sverja áður en
vætti bæru og svo dómendur.



Mörður Valgarðsson nefndi sér votta "í það vætti," sagði
hann, "að eg býð búum þeim níu, er eg kvaddi um sök þessa er
eg höfðaði á hönd Flosa Þórðarsyni, til setu vestur á árbakka
og til ruðningar um kvið þann. Býð eg lögboði að dómi svo að
dómendur heyra."



Mörður Valgarðsson nefndi sér votta í annað sinn. "Nefni eg
yður í það vætti," sagði hann, "að eg býð Flosa Þórðarsyni eða
þeim manni öðrum er handselda lögvörn hefir fyrir hann til
ruðningar um kvið þann er eg hefi saman settan vestur á árbakka.
Býð eg lögboði að dómi svo að dómendur heyra um dóm þveran."



Enn nefndi Mörður sér votta "í það vætti," sagði hann, "að nú
eru frumgögn öll fram komin þau er sökinni eiga að fylgja:
boðið til eiðspjalls, unninn eiður, sögð fram sök, borið
lýsingarvætti, borið sakartökuvætti, boðið búum í setu, boðið
til ruðningar um kvið. Nefni eg mér þessa votta að gögnum
þessum sem nú eru fram komin og svo að því að eg vil eigi
vera sókn horfinn þó að eg gangi frá dómi gagna að leita eða
annarra erinda."



Þeir Flosi gengu nú þangað til sem búarnir sátu.



Flosi mælti til þeirra: "Það munu Sigfússynir vita hversu
réttir vettvangsbúar þessir eru er hér eru kvaddir."



Ketill úr Mörk svarar: "Hér er sá búi er hélt Merði
Valgarðssyni undir skírn en annar er þrímenningur hans að
frændsemi."



Töldu þeir þá frændsemina og sönnuðu með eiði. Eyjólfur nefnir
sér votta að kviðurinn skyldi standa fyrst þar til er ruddur
væri.



Í annað sinn nefndi Eyjólfur sér votta "í það vætti," sagði
hann, "að eg ryð þessa menn báða úr kviðinum" - og nefndi þá á
nafn og svo feður þeirra - "fyrir þá sök að annar þeirra er
þrímenningur Marðar að frændsemi en annar að guðsifjum þeim
er kviðu eiga að ryðja að lögum. Eruð þið fyrir laga sakir ónýttir
í kviðinum því að nú er rétt lögruðning til ykkar komin. Ryð
eg ykkur úr að alþingismáli réttu og allsherjar lögum. Ryð eg
handseldu máli Flosa Þórðarsonar."



Nú mælti öll alþýða og kváðu ónýtt málið fyrir Merði. Urðu þá
allir á það sáttir að þá væri framar vörn en sókn.



Ásgrímur mælti þá við Mörð: "Eigi er enn þeirra allt þó að
þeir þykist nú hafa fast fram gengið og skal nú fara að finna
Þórhall son minn og vita hvað hann leggi til."



Þá var sendur skilríkur maður til Þórhalls og sagði sá honum
vandlega frá hvar þá var komið máli, að þeir Flosi þóttust
ónýtt hafa kviðinn.



Þórhallur mælti: "Það skal eg að gera að yður skal þetta ekki
að sakarspelli verða. Og seg þeim að þeir trúi ekki þó að
lögvillur séu gervar fyrir þeim því að vitringinum Eyjólfi
hefir nú yfir sést. Skalt þú nú ganga til þeirra sem
hvatlegast og seg að Mörður Valgarðsson gangi að dómi og
nefni sér votta að ónýtt er lögruðning þeirra" og sagði hann
þá fyrir greinilega allt hversu þeir skyldu með fara.



Sendimaður fór og sagði þeim tillögur Þórhalls.



Mörður Valgarðsson gekk þá að dóminum og nefndi sér votta "í
það vætti," sagði hann, "að eg ónýti lögruðning Eyjólfs
Bölverkssonar. Finn eg það til að hann ruddi eigi við aðilja
frumsakar heldur við þann er með sök fór. Nefni eg mér þessa
votta eða þeim er njóta þurfa þessa vættis."



Síðan bar hann vættið í dóm. Nú gekk hann þar til er búarnir
sátu og bað þá niður setjast er upp höfðu staðið og kvað þá
rétta vera í kviðinum. Mæltu þá allir að Þórhallur hefði mikið
að gert og þótti þá öllum framar sókn en vörn.



Flosi mælti þá við Eyjólf: "Ætlar þú þetta lög vera?"



"Það ætla eg víst," segir Eyjólfur, "og hefir oss að vísu
yfir sést. En þó skulum vér þetta þreyta meir með oss."



Eyjólfur nefndi sér þá votta "í það vætti," sagði hann, "að
eg ryð þessa tvo menn úr kviðinum" - og nefndi þá báða á nafn
- "fyrir þá sök að þið eruð búðsetumenn en eigi bændur. Ann eg
ykkur eigi að sitja í kviðinum því að nú er rétt lögruðning
til ykkar komin. Ryð eg ykkur úr kviðinum að alþingismáli
réttu og allsherjar lögum."



Kvað Eyjólfur sér nú mjög á óvart koma ef þetta mætti rengja.



Mæltu þá allir að þá væri vörn framar en sókn. Lofuðu nú
allir mjög Eyjólf og kölluðu engan mann mundu þurfa að reyna
við hann lögkæni.



Mörður Valgarðsson og Ásgrímur Elliða-Grímsson sendu nú mann
til Þórhalls að segja honum hvar þá var komið. En er
Þórhallur heyrði þetta spurði hann hvað þeir ættu sér góss.
Sendimaður sagði að annar þeirra bjó við málnytu "og hefir
bæði kýr og ær að búi en annar á þriðjung í landi því er þeir
búa á og fæðir sig sjálfur og hafa þeir eina eldstó og hinn,
er landið leigir, og einn smalamann."



Þórhallur mælti: "Enn mun þeim fara sem fyrr að þeim mun hafa
yfir sést og skal eg þetta allskjótt rengja fyrir þeim og svo
þó að Eyjólfur hefði hér alldigur orð um að rétt væri."



Þórhallur sagði nú sendimanni allt sem greinilegast hversu
þeir skyldu með fara.



Kom sendimaður aftur og sagði Merði og Ásgrími ráð þau er
Þórhallur hafði til lagið.



Mörður gekk þá að dómi og nefndi sér votta "í það vætti,"
sagði hann "að eg ónýti lögruðning Eyjólfs Bölverkssonar
fyrir það er hann ruddi þá menn úr kviðinum er að réttu eiga
í að vera. Er sá hver réttur í búakviði er hann á þrjú
hundruð í landi og þaðan af meira þó að hann hafi enga
málnytu. Hinn er og réttur í búakvið er hann býr við málnytu
þó að hann eigi eigi land."



Lét hann þá koma vættið í dóminn. Gekk hann nú þangað að er
búarnir voru og bað þá niður setjast og kvað þá rétta í
búakviðinum.



Þá varð óp mikið og kall og mæltu þá allir að mjög væri
hrakið málið fyrir þeim Flosa og Eyjólfi og urðu nú á það
sáttir að sókn væri framar en vörn.



Flosi mælti til Eyjólfs: "Mun þetta rétt vera?"



Eyjólfur lést eigi til þess hafa vitsmuni að vita það víst.



Sendu þeir þá mann til Skafta lögsögumanns að spyrja hann
eftir hvort rétt væri. Hann sendi þeim þau orð aftur að þetta
væru að vísu lög þó að fáir kynnu. Var þetta sagt þeim
Flosa.



Eyjólfur Bölverksson spurði nú Sigfússonu að um aðra búa þá
er kvaddir voru. Þeir kváðu vera þá fjóra er rangkvaddir
voru "því að þeir sitja heima er nærri voru."



Eyjólfur nefnir sér þá votta að hann ryður þá alla fjóra menn
úr kviðinum og mælti réttum ruðningarmálum.



Síðan mælti hann til búanna: "Þér eruð skyldir til að gera
hvorumtveggjum lög. Nú skuluð þér ganga að dómi þá er þér
eruð kvaddir og nefna yður votta að þér látið það standa
fyrir kviðburði yðrum að þér eruð fimm beiddir búakviðar en
þér eigið níu að bera. Mun Þórhallur þá öllum málum fram koma
ef hann bergur þessu við."



Fannst það nú á í öllu að þeir Flosi og Eyjólfur hældust.



Gerðist nú rómur mikill að því að eytt væri vígsmálinu og nú
væri vörn framar en sókn.



Ásgrímur mælti til Marðar: "Eigi vita þeir enn hverju þeir
hælast fyrr en Þórhallur er fundinn son minn. Sagði Njáll mér
svo að hann hefði svo kennt Þórhalli lög að hann mundi mestur
lögmaður vera á Íslandi þó að reyna þyrfti."



Var þá maður sendur til Þórhalls að segja honum hvar þá var
komið og hól þeirra Flosa og orðróm alþýðu að þá væri eytt
vígsmálinu fyrir þeim Merði.



"Vel er það," segir Þórhallur, "en enga fá þeir enn virðing
af þessu. Skalt þú nú fara og segja Merði að hann nefni votta
og vinni eið að því að meiri hlutur er rétt kvaddur. Skal
hann þá láta koma vættið í dóm og bergur hann þá frumsökinni
en sekur er hann þrem mörkum fyrir hvern þann er hann hefir
rangt kvatt og má það ekki sækja á þessu þingi."



Sendimaður fór nú aftur og sagði þeim Merði allt sem gerst frá
orðum Þórhalls.



Mörður gekk að dómi og nefndi sér votta og vann eið að því að
meiri hlutur var rétt kvaddur búanna. Kvaðst hann þá hafa
borgið frumsökinni "skulu óvinir vorir af öðru hafa metnað en
því að vér höfum hér mikið rangt í gert."



Var þá rómur mikill að því ger að Mörður gengi vel fram í
málinu en töldu Flosa og hans menn fara með lögvillur einar
og rangindi.



Flosi spurði Eyjólf hvort þetta mundi rétt vera en hann lést
það eigi víst vita og sagði lögsögumann úr því skyldu leysa.



Fór þá Þorkell Geitisson af þeirra hendi og sagði lögsögumanni
hvar komið var og spurði hvort þetta væri rétt er Mörður
hafði mælt.



Skafti svarar: "Fleiri eru nú allmiklir lögmenn en eg ætlaði.
En þér til að segja þá er þetta svo rétt í alla staði að hér
má ekki í móti mæla. En það ætlaði eg að eg einn mundi nú
kunna þessa lagarétting nú er Njáll er dauður því hann einn
vissi eg kunna."



Þorkell gekk þá aftur til þeirra Flosa og Eyjólfs og sagði
þeim að þetta voru lög.



Mörður Valgarðsson gekk þá að dómi og nefndi sér votta "í það
vætti," sagði hann, "að eg beiði búa þá, er eg kvaddi um sök
þá er eg höfðaði á hönd Flosa Þórðarsyni, framburðar um kvið
að bera annaðtveggja af eða á. Beiði eg lögbeiðingu að dómi
svo að dómendur heyra um dóm þveran."



Búar Marðar gengu þá að dómi. Taldi einn fram kviðinn en
allir guldu samkvæði og kvað svo að orði: "Mörður Valgarðsson
kvaddi oss kviðar þegna níu en vér stöndum hér nú þegnar fimm
en fjórir eru úr ruddir. Hefir nú vottorð komið fyrir þá
fjóra er bera áttu með oss. Skylda nú til lög að bera fram
kviðinn. Vorum vér kvaddir að bera um það hvort Flosi
Þórðarson hljóp lögmætu frumhlaupi til Helga Njálssonar á
þeim vettvangi er Flosi Þórðarson særði Helga Njálsson
holundarsári eða heilundar eða mergundar því er að ben
gerðist en Helgi fékk bana af. Kvaddi hann oss þeirra orða
allra er oss skylda lög til um að skilja og hann vildi oss að
dómi beitt hafa og þessu máli áttu að fylgja. Kvaddi hann
lögkvöð. Kvaddi hann svo að vér heyrðum á. Kvaddi hann um
handselt mál Þorgeirs Þórissonar. Höfum vér nú allir eiða
unnið og réttan kvið vorn og orðið á eitt sáttir, berum á
Flosa Þórðarson kviðinn og berum hann sannan að sökinni.
Berum vér svo skapaðan níu búa kvið þenna fram í
Austfirðingadóm yfir höfði Jóni sem Mörður kvaddi oss að. Er
sá kviður vor allra." sögðu þeir.



Í annað sinn báru þeir kviðinn og báru um sár fyrr en um
frumhlaup síðar en öll önnur orð báru þeir sem fyrr. Báru
þeir á Flosa kviðinn og báru hann sannan að sökinni.



Mörður Valgarðsson gekk að dómi og nefndi sér votta að búar
þeir, er hann hafði kvadda um sök þá er hann höfðaði á hönd
Flosa Þórðarsyni, höfðu borið á hann kviðinn og borið hann
sannan að sökinni. Nefndi hann sér þessa votta eða þeim er
neyta eða njóta þyrftu þessa vættis.



Í annað sinn nefndi Mörður sér votta "nefni eg í það vætti,"
sagði hann, "að eg býð Flosa Þórðarsyni eða þeim manni öðrum,
er handselda lögvörn hefir fyrir hann, að taka til varna
fyrir sök þá er eg höfðaði á hönd honum því að nú eru öll
sóknargögn fram komin þau er sökinni eiga að fylgja að lögum,
borin vætti öll og búakviður og nefndir vottar að kviðburði
og öllum gögnum þeim er fram eru komin. En ef nokkur hlutur
gerist sá í lögvörn þeirra er eg þurfi til sóknar að hafa þá
kýs eg sókn undir mig. Býð eg lögboði að dómi svo að dómendur
heyra."



"Það hlægir mig nú Eyjólfur," sagði Flosi, "í hug mér að þeim
mun í brún bregða og ofarlega kleyja þá er þú berð fram
vörnina."

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.