Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

Nj ch. 128

Njáls saga 128 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (Nj ch. 128)

Anonymous íslendingasögurNjáls saga
127128129

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):


Nú er þar til að taka er Flosi er.



Hann mælti: "Nú munum vér ríða til Bergþórshvols og koma þar
fyrir náttmál."



Þeir gera nú svo. Dalur var í hvolinum og riðu þeir þangað og
bundu þar hesta sína og dvöldust þar til þess er mjög leið á
kveldið.



Flosi mælti: "Nú skulum vér ganga heim að bænum og ganga
þröngt og fara seint og sjá hvað þeir taki til ráðs."



Njáll stóð úti og synir hans og Kári og allir heimamenn og
skipuðust fyrir á hlaðinu og var það nær þrír tigir manna.



Flosi nam staðar og mælti: "Nú skulum vér að hyggja hvað þeir
taka til ráðs því að mér líst svo ef þeir standa úti fyrir
sem vér munum þá aldrei sótta geta."



"Þá er vor för ill," segir Grani Gunnarsson, "ef vér skulum
eigi þora að að sækja."



"Það skal og eigi vera," segir Flosi, "og skulum vér að ganga
þó að þeir standi úti. En það afhroð munum vér gjalda að
margur mun eigi kunna frá að segja hvorir sigrast."



Njáll mælti til sinna manna: "Hvað sjáið þér til hversu mikið
lið þeir hafa?"



"Þeir hafa bæði mikið lið og harðsnúið," segir Skarphéðinn,
"en því nema þeir þó nú stað að þeir ætla að þeim muni illa
sækjast að vinna oss."



"Það mun ekki vera," segir Njáll, "og vil eg að menn gangi
inn því að illa sóttist þeim Gunnar að Hlíðarenda og var hann
einn fyrir. Eru hér hús rammleg sem þar voru og munu þeir
eigi sótt geta."



"Þetta er ekki þann veg að skilja," segir Skarphéðinn.
"Gunnar sóttu heim þeir höfðingjar er svo voru vel að sér að
heldur vildu frá hverfa en brenna hann inni. En þessir munu
þegar sækja oss með eldi er þeir mega eigi annan veg því að
þeir munu allt til vinna að yfir taki við oss. Munu þeir það
ætla sem eigi er ólíklegt að það sé þeirra bani ef oss dregur
undan. Eg er og þess ófús að láta svæla mig inni sem melrakka
í greni."



Njáll mælti: "Nú mun sem oftar að þér munuð bera mig ráðum,
synir mínir, og virða mig engis. En þá er þér voruð yngri
gerðuð þér það eigi og fór yðvart ráð þá betur fram."



Helgi mælti: "Gerum vér sem faðir vor vill. Það mun oss best
gegna."



"Eigi veit eg það víst," segir Skarphéðinn, "því að hann er
nú feigur. En vel má eg gera það til skaps föður míns að
brenna inni með honum því að eg hræðist ekki dauða minn."



Hann mælti þá við Kára: "Fylgjumst vér vel mágur svo að engi
vor skilji við annan."



"Það hefi eg ætlað," segir Kári, "en ef annars verður auðið
þá mun það verða fram að koma og mun ekki mega við því gera."



"Hefn þú vor," segir Skarphéðinn, "en vér skulum þín ef vér
lifum eftir."



Kári kvað svo vera skyldu. Gengu þeir þá inn allir og
skipuðust í dyrnar.



Flosi mælti: "Nú eru þeir feigir er þeir hafa inn gengið.
Skulum vér nú heim ganga sem skjótast og skipast sem þykkvast
fyrir dyrin og geyma þess að engi komist í braut hvorki Kári
né Njálssynir því að það er vor bani."



Þeir Flosi komu nú heim og skipuðust umhverfis húsin ef
nokkurar væru laundyr á. Flosi gekk framan að húsunum og hans
menn. Hróaldur Össurarson hljóp að þar sem Skarphéðinn var
fyrir og lagði til hans. Skarphéðinn hjó spjótið af skafti
fyrir honum og hljóp að honum og hjó til hans og kom öxin
ofan í skjöldinn og bar að Hróaldi þegar allan skjöldinn en
hyrnan sú hin fremri tók andlitið og féll hann á bak aftur og
þegar dauður.



Kári mælti: "Lítt dró enn undan við þig Skarphéðinn og ert þú
vor fræknastur."



"Eigi veit eg það víst," segir Skarphéðinn og brá við grönum
og glotti að.



Þeir Kári og Grímur og Helgi lögðu út mörgum spjótum og
særðu marga menn en þeir Flosi gátu ekki að gert.



Flosi mælti: "Vér höfum fengið mikinn skaða á mönnum vorum.
Eru margir sárir en sá veginn er vér mundum síst til kjósa. Nú er
það séð að vér fáum þá aldrei með vopnum sótta. Er sá nú
margur er eigi gengur jafnskörulega að sem létu en þó
eggjuðu mest. Mæli eg þetta mest til Grana Gunnarssonar og
Gunnars Lambasonar er sér létu verst eira. En þó munum vér nú
verða að gera annað ráð fyrir oss. Eru nú tveir kostir til og
er hvorgi góður. Sá annar að hverfa frá og er það vor bani,
hinn annar að bera að eld og brenna þá inni og er það stór
ábyrgðarhlutur fyrir guði er vér erum menn kristnir sjálfir.
En þó munum vér það bragðs taka."

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.