Njáls saga 126 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Nj ch. 126)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Flosi bjó sig austan þá er tveir mánuðir voru til vetrar og
stefndi til sín öllum sínum mönnum þeim er honum höfðu liði og ferð
heitið. Hver þeirra hafði tvo hesta og góð vopn. Þeir komu
allir til Svínafells og voru þar um nóttina. Flosi lét snemma
veita sér tíðir drottinsdaginn en síðan gekk hann til borðs.
Hann sagði fyrir öllum heimamönnum sínum hvað hvergi skyldi
starfa meðan hann væri í brautu. Síðan gekk hann til hesta
sinna.
Þeir Flosi riðu vestur á sand. Flosi bað þá fyrst ekki
allákaft ríða og kvað þó hinn veg lúka mundu. Hann bað alla
bíða ef nokkur þyrfti að dveljast. Þeir riðu vestur til
Skógahverfis og komu í Kirkjubæ. Flosi bað alla menn koma til
kirkju og biðjast fyrir. Menn gerðu svo.
Síðan stigu þeir á hesta sína og riðu upp á fjall og svo til
Fiskivatna og riðu nokkuru fyrir vestan vötnin og stefndu svo
vestur á sandinn. Létu þeir þá Eyjafjallajökul á vinstri hönd
sér og svo ofan í Goðaland og svo til Markarfljóts og komu um
nónskeið annan dag vikunnar á Þríhyrningshálsa og biðu til
miðs aftans.
Komu þar þá allir nema Ingjaldur frá Keldum. Sigfússynir
töldu á hann mjög en Flosi bað þá ekki ámæla Ingjaldi meðan
hann væri eigi hjá "en þó skulum vér gjalda honum síðar."
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.