Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

Nj ch. 102

Njáls saga 102 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (Nj ch. 102)

Anonymous íslendingasögurNjáls saga
101102103

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):


Guðleifur leitar nú Galdra-Héðins og finnur hann á
heiðinni og eltir hann ofan að Kerlingardalsá og komst í
skotfæri við hann og skýtur til hans spjóti og í gegnum hann.



Þaðan fóru þeir til Dyrhólma og áttu þar fund og boðaði
Þangbrandur þar trú og kristnaði þar Ingjald son Þorkels
Háeyjartyrðils.



Þaðan fóru þeir til Fljótshlíðar og boðuðu þar trú. Þar mælti
mest í mót Veturliði skáld og Ari son hans og fyrir það vógu
þeir Veturliða. Og er þar um kveðin vísa þessi:



Ryðfjónar gekk reynir

randa suðr á landi

beðs í bæna smiðju

Baldrs sigtólum halda.

Siðreynir lét síðan

snjallr morðhamar gjalla

hauðrs í hattar steðja

hjaldrs Vetrliða skaldi.


Þaðan fór Þangbrandur til Bergþórshvols og tók Njáll við trú
og öll hjú hans. En Mörður Valgarðsson gekk mest í móti. Þeir
fóru þaðan út yfir ár. Þeir fóru í Haukadal og skírðu þar
Hall og var hann þá þrevetur.



Þaðan fóru þeir til Grímsness. Þar efldi flokk í móti þeim
Þorvaldur hinn veili og sendi orð Úlfi Uggasyni að hann
skyldi fara að Þangbrandi og drepa hann og kvað til vísu
þessa:



Yggs bjálfa mun eg Úlfi

Endils um boð senda,

mér er við stála stýri

stugglaust, syni Ugga,

að gnýskúta Geitis

goðvarg fyrir argan,

þann er við rögn um regnir,

reki hann en eg annan.


Úlfur Uggason kvað aðra vísu í móti:



Tekka eg, sunds þótt sendi

sannreynir boð, tanna

hvarfs við hleypiskarfi,

Hárbarðs véa fjarðar.

Erat ráfáka rækis,

röng eru mál á gangi,

sé eg við mínu meini,

mínlegt flugu að gína.


"Og ætla eg ekki," sagði Úlfur, "að vera ginningarfífl hans.
En gæti hann að honum vefjist eigi tungan um höfuð."



Og eftir það fór sendimaður aftur til Þorvalds hins veila og
sagði honum orð Úlfs. Þorvaldur hafði margt manna um sig og
hafði það við orð að sitja fyrir þeim á Bláskógaheiði.



Þeir Þangbrandur og Guðleifur riðu úr Haukadal. Þeir mættu
manni einum er reið í mót þeim.



Sjá spurði að Guðleifi og er hann fann hann mælti hann:
"Njóta skalt þú Þorgils bróður þíns á Reykjahólum að eg vil
gera þér njósn að þeir hafa margar fyrirsátir og það með að
Þorvaldur hinn veili er með flokk sinn við Hestlæk í
Grímsnesi."



"Ekki skulum vér ríða að síður," segir Guðleifur, "til fundar
við hann."



Og sneru þeir síðan ofan til Hestlækjar. Þorvaldur var
þá kominn yfir lækinn.



Guðleifur mælti til Þangbrands: "Hér er nú Þorvaldur og
hlaupum nú að honum."



Þangbrandur skaut spjóti í gegnum Þorvald en Guðleifur hjó á
öxlina og frá ofan höndina og var það hans bani.



Eftir það ríða þeir á þing upp og hafði svo nær að frændur
Þorvalds mundu ganga að þeim. Veittu þeir Njáll og
Austfirðingar Þangbrandi. Hjalti Skeggjason kvað kviðling
þenna:



Spari eg eigi goð geyja.

Grey þykir mér Freyja.

Æ mun annað tveggja

Óðinn grey eða Freyja.


Hjalti fór utan um sumarið og Gissur hvíti. En skip
Þangbrands braut austur við Búlandsnes og hét skipið
Vísundur.



Þangbrandur fór allt vestur um sveitir.



Steinunn kom í mót honum, móðir Skáld-Refs. Hún boðaði
Þangbrandi heiðni og taldi lengi fyrir honum. Þangbrandur
þagði meðan hún talaði en talaði lengi eftir og sneri því
öllu er hún hafði mælt í villu.



"Hefir þú heyrt það," sagði hún, "er Þór bauð Kristi á hólm
og þorði Kristur eigi að berjast við Þór?"



"Heyrt hefi eg," segir Þangbrandur, "að Þór var ekki nema
mold og aska ef guð vildi eigi að hann lifði."



"Veist þú," segir hún, "hver brotið hefir skip þitt?"



"Hvað segir þú til?" segir hann.



"Það mun eg segja þér," segir hún:



Braut fyrir bjöllu gæti,

bönd ráku val strandar,

mögfellandi mellu,

mástalls, Vísund allan.

Hlífðit Kristr, þá er kneyfði

knörr, málmfeta varra.

Lítt ætla eg að guð gætti

Gylfa hreins að einu.


Og enn kvað hún aðra vísu:



Þór brá Þvinnils dýri

Þangbrands úr stað löngu,

hristi búss og beysti

barðs og laust við jörðu.

Muna skíð um sjá síðan

sundfært Atals grundar,

hregg því að hart tók leggja,

hánum kennt, í spánu.


Eftir það skildu þau Þangbrandur og Steinunn og fóru þeir
vestur til Barðastrandar.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.